Mímir - 01.03.1983, Side 11

Mímir - 01.03.1983, Side 11
Þessar setningar liggur beinast við að túlka þannig að hér sé ekki tilvísunareyðing á ferð- um (sbr. Höskuldur Þráinsson 1980:65—6, 87—8), heldur sé frumlagi þeirrar seinni sleppt vegna þess að það er hið sama og í þeirri fyrri, eins og altítt er (sbr. t.d. Jakob Jóh. Smári 1920:31, Eiríkur Rögnvaldsson 1982). Þá er seinni setningin ekki tilvísunar- setning, heldur hliðskipuð aðalsetning (sjá um sams konar greiningarvandamál t.d. Hall- dór Ármann Sigurðsson 1982:29—-30). En niðurstöður talningarinnar koma fram í eftir- farandi töflu: C0 (5) cð X tilvísunar ai +-> tenging Útg. ár B Ó K co sem er °g 1919 Barn náttúrunnar 35 95 5 1924 Undir Helgahnúk 20 97 2 1952 Heiman eg fór3 47 87 13 1927 Vefarinn mikli frá Kasmír 7 96 4 1931 Þú vínviður hreini 16 98 2 1932 Fuglinn í fjörunni 9 98 2 1934 Sjálfstætt fólk 5 94 5 1937 Ljós heimsins 29 98 2 1938 Höll sumarlandsins 15 100 1939 Hús skáldsins 18 99 1 1940 Fegurð himinsins 15 97 2 1 1943 Islandsklukkan 31 97 1 2 1944 Hið Ijósa man 15 99 1 1946 Eldur í Kaupinhafn 19 98 2 1948 Atómstöðin 21 100 1952 Gerpla 5 33 67 1957 Brekkukotsannáll 10 95 5 1960 Paradísarheimt 11 92 8 1968 Kristnihald undir Jökli 22 92 6 2 1970 Innansveitar- kronika 30 94 6 1972 Guðsgjafaþula 20 94 6 1975 I túninu heima 12 92 8 1976 Ungur eg var 12 93 7 1978 Sjömeistarasagan 13 90 10 1980 Grikklandsárið 12 84 2 14 2.2 Niðurstöður Eins og sjá má er fyrsta dæmi rnitt um notkun og þar sem mér fyndist verða að vera tilvísunartenging úr Fegurð himinsins frá 1940: (6) Héðan sá yfir Bervíkurhrepp, þessa litlu afskektu bygð með sínu fátæk- lega undirlendi, söndum við hafn- lausa vogmyndaða strönd byrgða gróðurlitlum fjöllum tveim megin, og átti í kaupstað að sækja um skarð, í annað hérað (Fegurð himinsins, 7) Sams konar notkun og kemur fyrir í næstu bók Laxness, Islandsklukkunni, en síðan hef ég ekki fundið dæmi hennar fyrr en í Kristnihaldi undir Jökli frá 1968. Þess ber þó að gæta að eins og sést á töflunni hef- ur aðeins lítill hluti texta hverrar bókar verið kannaður, allt niður í 5%, og því er ekki hægt að fullyrða að títtnefnd notk- un og komi hvorki fyrir fram að 1940 né milli 1943 og 1968. Hitt er þó ljóst að hún hefst fyrir alvöru um 1970 og eykst jafnt og þétt allan síðasta áratug, uns hún kemst upp í 14% í síðustu bókinni, Grikklands- árinu. Hlutfallið milli sem og er helst nokkuð svipað fram um 1970, þegar er hverfur að mestu. Frá þessu er þó ein undantekning, sem er Gerpla; þar er er notað í 2A tilvika Þetta er skýrt dæmi um hvernig Laxness lagar stílinn að söguefninu; í íslensku 13. aldar ritmáli yfirgnæfir er sem (í Njálu er er t.d. notað í 4/5 tilvika, sbr. Halldór Ármann Sigurðsson 1982:29). Önnur tilvísunarorð er vart að nefna; eitt dæmi fannst um að (í Sjálfstæðu fólki) og annað um eð (í Undir Helgahnúk), en bæði þessi smáorð voru áður notuð sem tilvísun- artengingar í íslensku (sbr. Höskuldur Þrá- insson 1980:68). Þá voru einstöku dæmi um að tilvísunarsetningar væru tengdar með spurnarfornöfnum, en þeim var sleppt úr 9

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.