Mímir - 01.03.1983, Blaðsíða 45

Mímir - 01.03.1983, Blaðsíða 45
þessum sálmi við, eftir að hann lauk verk- inu, ásamt 2. sálmi til þess að fylla fimmta tuginn/’Þessi munnmælasaga verður auðvitað ekki sönnuð en sálmurinn er samt á marg- an hátt ólíkur öðrum. Textinn, eða tilvísunin í píslarsöguna sem skipar oft þó nokkuð rúm, er aðeins eitt erindi enda er Hallgrímur að fjalla um sama efni og í sálminum á undan. Sálmurinn er því að langmestu leyti hugleið- ingar og útlegging út frá þessu frjóa þema. Utleggingunni lýkur með 20. versi en þá tek- ur ákallið við, sem er óvenjulangt, 7 vers sem tengjast aðalþema sálmsins. Meginstef og úrvinnsla Hallgrímur byggir þennan sálm upp af andstæðum eins og svo marga aðra sálma. Hann leikur sér að orðunum akur og gjald og setur Jesúm og höfuðprestana upp sem andstæður og samstæður í senn og í því felst rnáske snilldin. Þeir verða að gjalda fyrir það sem þeir eignast en gjaldinu er ekki hægt að líkja saman. Jesús greiðir með blóði sínu og eignast andleg verðmæti en höfuðprestarnir gjalda með sviknu fé og öðlast þess í stað forgengileg verðmæti. Þannig tengjast þessar samstæður saman og togast á í senn: Andlegt Jesús Blóð Krists Miskunn V eraldlegt Höfuðprestarnir Silfurpeningarnir Akur Pottmakarans Það sem tengir þessar andstæður saman er svikarinn Júdas sem hrindir atburðunum af stað. En mannskepnan getur iðrast og með henni öðlast náð drottins eins og Júdas gerir þetjar hann iðrast (sbr. yfirskrift 16. sálms). Það kemur fram í 8. erindi að maðurinn er með bagga erfðasyndarinnar á bakinu eftir að Adam féll. I næstu erindum er lýst þeim hörmungum sem bíða manns handan grafar bví að sálin er í útlegð. Hið eina sem gat biargað sál mannanna var að Jesús keypti okkur úr útlegðinni og er hér enn vísað í aðalþema sálmsins, kaup-sala (sbr. 6.-7. er.) sem var undirbúið strax í sjö fyrstu erind- unum. Jesús geiðir lausnargjaldið með blóði sínu og þar með er hann búinn að borga fvrir syndafall Adams og miskunnin er enn föl mönnunum, þ.e. þeim sem iðrast og trúa á Jesúm Krist. I 21. erindi hefst síðan bæn og ákall Hall- gríms til Jesú sem síðar nær hátindi í hinu gullfallega lokaerindi sálmsins. I þessum lokahluta sálmsins er Hallgrímur enn trúr aðalviðfangsefninu. Hér samtvinnast akur kristninnar og trú Hallgríms, akur hans sjálfs, og hann gefur Jesú allan ávöxt trúar sinnar. í tveimur síðustu erindunum biður hann um legstað í akri kristninnar og samsamar sig síðan hveitikorni á uppskerutíma sem fer til þess sem akurinn á. Þessi samtvinnun er stór- kostlega gerð og er erfitt að skýra með orð- um, sálmurinn talar máli sínu af mikilli snilld: XVII,27. Hveitikorn þekktu þitt, þá upp rís holdið mitt, í bindini barna þinna blessun láttu mig finna. Myndmál Hallgrímur notar í þessum sálmi samlík- ingar og myndmál til þess að orða og skýra út hugsun sína. Akurinn verður honum mjög auðug mynd sem tekur á sig margar merk- ingar. Hann er bæði notaður bókstaflega sem ,,akur pottmakarans“ og sem legstaður dauðra, „akursins greftrun". Einnig huglægt: XVII,24. Þú gafst mér akurinn þinn. Þér gef ég aftur minn. XVII,25. ávöxtinn iðju minnar í akri kristninnar þinnar. Avöxturinn er bæði almenns eðlis, kristinn maður sem er trúr í hjarta sínu, verður ávöxt- ur kristninnar og persónulegur, sem ávöxt- ur iðrunar og ástar á Jesú. Hallgrímur líkir trúlausum manni við fanga og útlaga sem er 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.