Mímir - 01.03.1983, Side 43
GU3RUN NORDAL:
ATHUGUN Á ÞREMUR PASSÍUSÁLMUM
INNGANGUR
Pað er samdóma álit þeirra fræðimanna
sem hafa fjallað um Passíusálmana að þeir
séu mikið listaverk og glæsilegur tindur í
bókmenntasögu Islendinga.1 Þó að þessi
skoðun sé svona almenn hefur enginn þess-
ara fræðimanna haft það fyrir meginmark-
mið að kanna í hverju þessi mikla list er fólg-
in enda má segja að rannsóknaraðferðir þeirra
hafi ekki beinst að því. Aherslur þeirra hafa
frekar verið á baksviði og tilurð verksins en á
orðsnilld Hallgríms Péturssonar þó að eng-
inn hafi komist hjá því að nefna hana. Pess-
ar rannsóknir hafa fært nútímalesanda nær
þjóðfélagi og hugsunarhætti lútersks manns á
17. öld og því skáldi sem bjó honum búning.
List verður vonandi ekki útskýrð endanlega
rneð orðum því þá mundu listaverk missa
aðdráttarafl sitt. Listaverk hafa líka misjöfn
áhrif á fólk og skoðanir geta því verið skiptar.
En ég hef trú á að rækileg athugun á aðferð-
um Hallgríms geti opnað okkur nýja sýn inn
í þetta listaverk og kannski skýrt, að svo
milclu leyti sem það er hægt, af hverju Passíu-
sálmarnir eru meira listaverk en mörg önnur.
Passíusálmarnir eru vissulega höfundar-
verk og könnun á skáldinu getur hjálpað les-
andanum í túlkun. Allar slíkar staðreyndir
koma okkur að gagni við túlkun á heildar-
merkingu sálmanna. En samt eru Passíusálm-
arnir sjálfstæður texti sem hefur lifað í 300
ár meðal almennings án þess að sérhver les-
andi hafi gert sér grein fyrir Hallgrími og
hugmyndum hans. Eitthvað hlýtur að búa í
Passíusálmunum sem gefur þeim sjálfstætt
iíf. 1 fyrsta lagi er hér um trúarlegt verk að
ræða. Píslarsaga Krists er rakin og túlkuð á
mjög persónulegan hátt, ,,ef til vill er það
einlægnin, öllu fremur en innileikinn og mild-
in, sem hefur varðveitt Passíusálmana svo
síunga fyrir kynslóð eftir kynslóð sem raun
hefur á orðið.“- Fólk hefur fengið það á til-
finninguna að talað væri beint til þess á máli
sem það skildi. í öðru lagi er hér um skáld-
verk að ræða, írumsmíð mikils listamanns og
túlkun hans á trú sinni, sjálfum sér og sínum
samtíma. Pessir þættir eru samtvinnaðir en
samt er nauðsynlegt að aðgreina þá.3
Fræðimenn eru sammála um að Passíu-
sálmarnir væru ekki svo lifandi enn þann
dag í dag nema til kæmu hin stórkostlegu
vinnubrögð skáldsins. Boðskapur nægir ekki
til að tryggja langlífi skáldverka eins og örlög
Llugvekjusálma Sigurðar Jónssonar á Prest-
hólum sýna. Það er framsetningin sem ræður
úrslitum og hvernig farið er með viðfangs-
efnið.
Sú spurning sem brennur heitast á vörun-
um er: hvað gerir Passíusálmana að svo miklu
listaverki? Spurningin er áleitin en um leið
ógnvekjandi því svörin verða sundurlaus,
listaverk verður ekki skilgreint. En það er
þarft verk að gera bókmenntalega greiningu á
Passíusálmunum og reyna að þokast nær snill-
inni sem þar býr að baki. Athuga hvaða að-
ferðurn Hallgrímur beitir og hvaða brögð
hann notar til að koma boðskap sínum á
41