Mímir - 01.03.1983, Qupperneq 38

Mímir - 01.03.1983, Qupperneq 38
EYSTEINN ÞORVALDSSON: ATÖ!V!SKÁLDIN - goðsögn eða sérstæð skáldakynslóS Þrír glaðbeittir stúdentar skrifuðu í síð- asta hefti Mímis umsögn um bók mína, Atóm- skáldin. Það er út af fyrir sig óvenjuleg við- höfn að safnað skuli liði til að ritdæma eitt bókarkver, og ég er fyrir mína hönd og bók- arinnar dálítið hreykinn af slíku tilstandi. En ég verð að viðurkenna að mér þykir árangur þeirra félaga vera í litlu samræmi við liðssafnaðinn, og ég varð fyrir vonbrigðum með þau vinnubrögð sem ritdómurinn vitnar um. Mér dettur ekki í hug að væna þessa ungu menn um óheilindi eða illkvittni. En annað hvort er athugun þeirra og vinnubrögð- um verulega ábótavant, eins og ég mun svna fram á hér á eftir, eða þá að þeir telja sig hafa einhverja aðra ástæðu til þess að leggja sig fram um að fordæma þessa bók. Að sjálf- sögðu er þeim eins og öðrum guðvelkomið að hafa hvaða álit sem þeim þóknast á bókinni, og hafi þeir þökk fyrir þá umræðu sem þeir hafa vakið um hana. En ég leyfi mér að mæl- ast til þess að bókin sé lesin og metin með hlutlægu hugarfari, að ávirðingar séu rök- studdar og að málsmeðferð bókarinnar sé ekki ranvfærð. Ég hef siálfur fengið marga vitnis- burði um þessa bók úr ólíkum áttum, en allt um bað er mér hulin ráðgáta hvað það er í henni sem leggst þversum í skapið á þeim rit- bræðrum þremur. Grein þeirra einkennist af einhverju önuglvndi sem mér fellur raunar m'klu verr en efnislegar aðfinnslur þeirra. Helsra skvrin.gin er sú að þeir séu að leita að einhveriu í bókinni sem alls ekki er þar og alls ekki stóð til að væri þar og finnst þar þess vegna ekki. Að þessu leyti fer þeim þá eins og mörgum sem voru að lesa módern Ijóð fyrir 30 árum og urðu líka sárgramir. Hér á eftir drep ég á nokkrar aðfinnslur og spurningar þeirra félaga, en mér þykir ástæðulaust að elta ólar við alla þá staðlausu stafi eða missagnir sem ég sé í máli þeirra. Mér er meira í mun að ræða nánar sameigin- leg áhugamál okkar allra þó að um þau séu skoðanir okkar vissulega mjög skiptar. Ég hef stundum lagt fyrir nemendur mína í menntaskóla ljóðatexta frá ýmsum tímum og spurt hvað þeim fyndist urn þá, — t.d. hvaða einkenni í þeim bentu til aldurs, stefnu eða höfundar. Þar á meðal voru viðlög gam- alla danskvæða, gömul vers og einnig æva- gamlar hækur og tönkur í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Mörg af þessum gömlu kvæðum töldu hinir ungu nemendur vera ,,nútímaljóð“ eða ,,atómljóð“. Textar sem þessir orkuðu á lítt þjálfaða ljóðalesendur sem módern ljóðatexti. Þessu vík ég að í bók minni, og á það hafa margir fleiri bent en ég að módernt megi það kallast í ljóðlist sem sé ólíkt ríkjandi hefð eða að einhverju leyti í ósamræmi eða andstöðu við hana. Þetta er ein tilraunin til að ná taki á hinu hála hug- taki módernismans. Þeir þremenningarnir leggja þetta út sem mótsögn við titil bókar- innar og afneitun á tengslum módernismans við nútímann. Slík fullvrðing er ekkert ann- að en útúrsnúningur og þvt miður ekki sá eini í grein þremenninganna. Þeir vilja snúa því upp á mína ábvrgð að módernisma-hugtakið 36
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.