Mímir - 01.03.1983, Side 39

Mímir - 01.03.1983, Side 39
er óljóst og mótsagnakennt. Öllum færustu bókmenntarræömgum heims ber saman um að fuilnægjandi skiigreíning á hugtakinu sé ó- mótanteg, — margbreytni og mótsagnir þess sem feilur undir hugtakið eru meiri en svo. Frá þessu er einmitt geint í bók minni og margir merkismenn kvaddir til vitnis. Peir þremenningar segja orðrétt: „Að hans dómi (þ.e. Eysteins) eru þau ljóð módern sem hata tvö af eftirfarandi þrem einkennum: 1. Obundið form. 2. Samþjöppun í máli. 3. Frjálsieg og óheft tengsl myndmálsins.“ Þeir sem viija, geta lesið það í bók minni að þetta eru skoðanir Svíans Ingemar Algulins, settar fram til skýringar á formeðli módernra ljóða. Til fróðleiks bregð ég þessari kenningu sem mælikvarða á ljóð atómskáldanna og fleiri skálda. Menn getur greint á um ágæti þess- ara kenninga, — þær eru enn ein viðleitnin til að meta og vega módernismann í ljóða- gerð, en ég get alls ekki skilið þann rausnar- skap að eigna mér þær. Næst vík ég að stærð atómskáldahópsins. Eg bjóst raunar alltaf við að seint yrðu allir sammála um það hverjir ættu að teljast í þeim hópi. Ég færi ákveðin rök fyrir mínum slcoð- unum um þetta í bókinni og þeim hefur ekki verið haggað. Þremenningarnir agnúast heil- mikið út af þessu atriði en nota langa og hik- andi fyrirvara. Þeir segja: „Ef nota á orðið atómskáld virðist þannig að miklu leyti eðli- legt að stækka hópinn og láta það ekki ein- ungis ná yfir þessi fimm skáld.“ Og áfram með sama hikinu: „. . . spurningin er hvort ekki megi bæta ýmsum fleirum í hópinn sem komu að vísu seinna fram en fimmmenning- arnir.“ (leturbreyting mín) Ég tek það einmitt fram í bókinni að mörk- in séu dregin þarna á miili, þ.e. milli atóm- skáldanna og þeirra sem komu fram eftir að þau höfðu náð góðri fótfestu sem skáld. Ef menn hafa ekki veigameiri ástæðu fyrir stækkun atómskáldahópsins en þeir þremenn- ingarnir, þá mætti allt eins spyrja hvort ekki ætti að setja í einn flokk öll skáld sem fram komu frá 1945 og t.d. allt til 1970 og kalla þau atómskáld. En öllum sem lesa bók mína hlýtur að vera Ijóst hvers vegna ég dreg mörk- in. Ég álít það síður en svo til framdráttar skilningi á formbreytingunni þótt í hóp atóm- skáldanna væri blandað af handahófi hluta næstu skáldakynslóðar eins og þremenning- arnir leggja til. Þeir nefna til Jóhann Hjálm- arsson, Dag Sigurðarson, Ara Jósefsson, Arn- fríði Jónatansdóttur og Jón frá Pálmholti, en ekkert af þessum skáldum kom fram fyrr en eftir að atómskáldin höfðu rutt brautina. Fyr- ir þessu er m.a. gerð grein á bls. 160 í Atóm- skáldunum, og þar er einmitt getið um Jó- hann Hjálmarsson í þessu sambandi þó að þremenningarnir kvarti yfir því að ekki sé orði á hann minnst. Öll þessi fimm skáld sem þremenningarnir vilja gera að atómskáldum, og reyndar mörg fleiri af þeirri skáldakynslóð, eru einmitt í hópi þeirra sem fyrstir tóku mið af atóm- skáldunum og samherjum þeirra á atóm- skáldatímabilinu 1945—1955. Fyrstu ljóða- bækur þeirra komu ekki út fyrr en 1955 og síðar þegar atómskáldin voru öll löngu orðin þekkt sem formbreytingarskáld. Og rannsókn mín nær ekki nema til 1955 hvort sem mönn- um líkar það betur eða verr, þó að ég láti allar Ijóðabækur atómskáldanna fylgja með í yfir- liti um ljóðagerð þeirra. Auðvitað mætti fjalla um módernismann í íslenskri ljóðagerð t.d. frá 1945—1970 eða frá 1955—1970. Margt gæti réttlætt slíka könnun og slíka tíma- skiptingu, en mér þætti ekki tilhlýðilegt að kalla slíkt tímabil atómskáldanna. Einkennileg þykir mér sú staðhæfing þre- menninganna að ég bendi ekki á nein sam- eiginleg skáldskapareinkenni atómskáldanna sem réttlæti að fjalla um þau sem hóp. Þeir láta rneira að segja að því liggja að „hugmynd- in um atómskáldin“ sé „bara meiriháttar goð- sögn“. Mætti ég benda t.d. á allan seinni hluta bókarinnar þar sem borin eru saman ýmis skáldskapareinkenni s.s. meðferð mynd- máls, málnotkun og lífsviðhorf, svo og á yfir- 37

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.