Mímir - 01.03.1983, Qupperneq 64

Mímir - 01.03.1983, Qupperneq 64
STARFSANNÁLL MÍMIS VETURINN 1980-1981 Maður er nefndur Guðvarður Már Gunn- laugsson, kallaður Varði. Af honum er dregið nafnið ,,Varðavetur“ sem hér verður í annál færður. Þá hljóp ofvöxtur í skepnuna Mími þrátt fyrir róstursama tíð og vetrarhörkur. Sem kunnugt er hafa íslenskunemar fóstrað kvikindið um áratuga skeið og fer mjög mis- jöfnum sögum af skepnuhaldi þeirra. Um- ræddan vetur hélt Varði um stjórnvölinn og sýndi Mími fádæma alúð og umhirðu og fvrr en varði fór skepnan að sýna af sér ýmis merki velmegunar sem gefa tilefni til pistils þessa. ,,Varðavetri“ má gefa yfirskrif tina: GAGNRÝNIÐ HUGARFAR OG NÝ- SKÖPUNARÞRÁ. Setti þetta hvort tveggja mark sitt á hefðbundinn Mími og losaði ör- lítið þá fjötra sem njörvað höfðu skepnuna lengi, lengi. Fyrst er að minnast splunkunýrra rann- sóknarleiðangra sem farnir voru í Árnastofn- un að hausti til að afhjúpa leyndardóma stofn- unarinnar og höfðu starfsmenn hennar leið- sögn með höndum. Þá voru haldnir fjórir fræðilegir fyrirlestrar og tveir almennir fund- ir á vegum Mímis. Sá fyrri tók verkfall stundakennara til umræðu og samþykkti á- lyktun þess efnis að nemendur mættu ekki í kennslustund hjá föstum kennurum til að sýna verkfallsmönnum stuðning í verki. Is- lenskunemar gengu þarna fram fyrir skjöldu og fleiri deildir fylgdu fordæmi þeirra. Varði skipulagði verkfallsvörslu og var mikill bar- áttuhugur og harka í mönnum meðan á þess- um aðgerðum stóð. Síðari fundurinn tók til umfjöllunar ,,kvennabókmenntamálið“. Þar greindi námsnefnd frá gangi mála og lagði á- herslu á eigið ákvörðunarvald sem hrifsað hafði verið frá henni í þessu tilviki. Fundur- inn samþykkti einróma ályktun til stuðnings námsnefndinni. Þarna var einnig skipt niður í vinnuhópa til að gera úttekt á námskeiðum vetrarins, gagnrýna og koma með tillögur til úrbóta. Umbótartillögum var komið á fram- færi í fréttasneplinum ,,Mímímú“ sem var nýtt og ferskt framtak Kjartans Valgarðsson- ar. Pennagleði var mikil og útgáfustarfsemin blómstraði. Undir vorið leit blaðið Mímir dagsins ljós á við tvö blöð að þykkt og á- skrifendum fjölgaði stórlega. Skemmtanahald Mímis stendur á gömlum merg en þó brá fyrir nýjungum þar eins og á alvarlega sviðinu. I því sambandi má nefna lokasamkvæmi og kynningarkvöldin sem voru nýjung og kraftakvöldin sem voru uppvakn- ingar frá eldri tíð. Þessir nýgræðlingar féllu vel í jarðveg hefðarinnar þar sem fyrir voru rannsóknaræfingar og leiðangrar og eitt þorrablót. Kraftakvöldin voru haldin uppi á hana- bjálka við Bræðraborgarstíginn. Þar braust út bæld nýsköpunarþrá Mímis í formi söngs, upplestrar, töfrabragða og leikflutnings. Leik- ritið var frumsamið af tveim ungum og efni- legum Mímis-liðum. Verkið var hvöss ádeila á kennslufyrirkomulag íslenskudeildarinnar, hitti beint í mark og kynti enn frekar undir þá baráttuglóð sem brann í hjarta Mímis. Rannsóknaræfingar um jól og vor heppn- 62
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.