Fréttablaðið - 28.10.2017, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR ■ FRÉTTABLAÐIÐ 28. OKTÓBER 2017 LAUCARDAGUR
Eitt fordæmi fyrir fjögurra flokka stjóm
Fjórum sinnum í sögunni hafa minnihlutastjórnir verið myndaðar. Þær hafa aldrei setió heilt kjörtímabil. Gunnar Helgi Kristinsson,
prófessor í stjórnmálafræði, segir vinnubrögð þuríá að breytast verulega til að myndun minnihlutastjórnar gæti gengið upp.
Fjögurra flokka ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar lét af störfum 1991. í henni sátu frá vinstri Július Sólnes, Guð-
mundur Bjarnason, Svavar Gestsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Steingrímur Hermannsson, Halldór Ásgrímsson,
Ólafur Ragnar Grímsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Sigurðsson og Óli Þ. Guðbjartsson. fréttablaðið/gva
stjórnmál Eitt dæmi er um það í
lýðveldissögunni að mynduð hafi
verið fjögurra flokka ríkisstjórn. Það
var þegar Borgaraflokkurinn gekk
til liðs við Framsóknarflokkinn,
Alþýðubandalagið og Alþýðuflokk-
inn áriðl989. Ríkisstjórnin satfram
að alþingiskosningum 1991. Miðað
við niðurstöður skoðanakannana
verður ómögulegt að mynda meiri-
hlutastjórn nema með þátttöku
þriggja til fjögurra flokka.
Nokkur dæmi eru um þriggja
flokka stjórnir. „Það hafa yfirleitt
verið vinstri stjórnir," segir Gunn-
ar Helgi Kristinsson, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskóla
íslands. Fyrsta slíka stjórnin var
mynduð árið 1947 og sat í tvö ár.
Sú stjórn var kölluð Stefanía og var
mynduð af Sjálfstæðisflokknum,
Alþýðuflokknum og Alþýðubanda-
lagi. Næsta stjórn var vinstri stjórn
frá 1956 til 1958 sem var mynduð
af Framsóknarflokknum, Alþýðu-
bandalaginu og Alþýðuflokknum.
Árið 1971 til 1974satstjórnSam-
taka frjálslyndra og vinstri manna,
Alþýðubandalagsins og Fram-
sóknarflokksins og svo sat vinstri-
stjórn Aiþýðubandalagsins, Alþýðu-
flokksins og Framsóknarflokksins
á árunum 1978 til 1979. Árið 1987
var mynduð þriggja flokka stjórn
undir forystu Þorsteins Pálssonar,
þáverandi formanns Sjálfstæðis-
flokksins, með Framsóknarflokki
og Aiþýðuflokki. Stjórnin sprakk
í beinni útsendingu á Stöð 2 rúmu
ári seinna og þá var mynduð vinstri-
stjórn sem var undanfari fjögurra
flokka stjórnarinnar. „Síðan erum
við bara með tveggja flokka stjórnir
eftir það þangað til í fyrra,“ segir
Gunnar Helgi.
Þá hafa nokkrar minnihluta-
stjórnir verið myndaðar. Árið 1949
myndaði Ólafur Thors minnihluta-
stjórn sem starfaði til 1950. „Það er
eina tilraunin til þess að fá minni-
hlutastjórn til að virka sem eitthvað
annað en bráðabirgðastjórn," segir
Gunnar Helgi.
Árið 1958 sat Alþýðuflokkurinn í
minnihlutastjórn í skjóli Sjálfstæðis-
flokksins til að koma á breytingum á
kjördæmaskipan.Árin 1979 til 1980
var Alþýðuflokkurinn í minnihluta-
stjórn þangað til kosningar voru
haldnar. Þá var minnihlutastjórn
Samfylkingarinnar og VG mynduð
1. febrúar 2009. Hún naut hlutleysis
Framsóknarflokksins.
„Þannig að það er engin hefð fyrir
minnihlutastjórnum. Ef landslagið
Samstarf margra
flokka í borgarstjórn
Þrátt fyrir að einungis eitt for-
dæmi sé fyrir fjögurra flokka
meirihluta á Alþingi eru nokkur
fordæmi fyrir þvi í sveitastjórn-
um. Nærtækast er að nefna
núverandi meirihluta í Reykjavík,
sem er myndaðuraf fjórum
flokkum. Þá var kosningabanda-
lagR-listans upphaflega myndað
af fimm stjórnmálahreyf-
ingum, það er Alþýðuflokknum,
Alþýðubandalagi, Framsóknar-
flokknum, Kvennalistanum og
Nýjum vettvangi.
ætti að breytast myndi það kalla á
töluvert breytt vinnubrögð," segir
Gunnar Helgi.
Á fullveldistímanum hefur ein-
ungis ein utanþingsstjórn verið starf-
andi. Gunnar Helgi segir aö það megi
læra mjög margt af þeirri stjórn. „Það
var stjórn sem var mynduð af ríkis-
stjóra sem þá var og hafði ekki þing-
meirihluta. Hún réði bókstaflega
ekkert við þingið og var í m jög veikri
stöðu. Menn hafa ályktað út frá því
að minnihlutastjórnir myndu ekki
eiga glaða daga á íslandi og myndi
ganga illa að koma hlutum í gegnum
þingið. En maður veit aldrei."
jonhakon@frettabladid.is
Eimskip rekur Herjólf í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR p. friðriksson
Feröum Herjólfs
veröi fjölgaö
SAMGÓNGUR Jón Gunnarsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
og Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, stefna á að undir-
rita samning þann 1. desember næst-
komandi um að bærinn taki við
rekstri Herjólfs. Undirrituð hefur
verið viljayfirlýsing þar sem helstu
markmið samningsins koma fram.
Meðal annars að skipið verði nýtt til
siglinga iengur hvern sólarhring en
nú er og fari allt að átta ferðir. Einnig
að núverandi Herjólfur verði nýttur
sem varaskip til ferjusiglinga í land-
inu eftir að nýr Herjólfur er kominn
til landsins. Þá er gerð krafa um að
rekstrarhagræðis verði gætt til hins
ítrasta. - jhh
Kaupa hús á 256
milljónir
HAFNARFJÖRDUR Benedikt Jóhannes-
son, fjármála- og efnahagsráðherra,
hefur undirritað kaupsamning fýrir
hönd ríkisins við Hafnarfjarðarbæ
um Suðurgötu 14 í Hafnarfirði, þar
sem ríkisskattstjóri var áður með
starfsemi.
Um er að ræða tæplega 1300 fer-
metra húseign og hyggst Hafnar-
fjarðarbær nýta húsnæðið fyrir
vinnustað og þjónustu fyrir fatlað
fólk, auk annarrar starfsemi sem
rúmast getur í húsinu.
Kaupverð eignarinnar er 256
milljónir ogverðurhúsnæðið afhent
1. nóvember.-jhh
MiÐFLOKKURlNN
KOSNINGAKAFFI
Verið velkomin í kosningakaffi Miðflokksins á
höfuðborgarsvæðinu, Fáksheimilinu í Víðidal
kl. 10-17 í dag. Islensk! hesturinn verður á svæðinu
og börn geta farið frítt á bak.
KOSN i NGAVAKA
Allir velkomnir á kosningavöku Miðflokksins
á lcelandair Hotel Reykjavík Natura frá kl. 20:30.
KOSNINGASKRIFSTOFUR
Reykj avík
Fáksheimilinu I Víðidal, JL-húsinu oe Hafnarstræti 19,
kl. 10-17.
Suðvesturkjördæmi
Bæjarhrauni 8, Hafnarfirði, kl. 10-18.
Suðurkjördæmi
Eyravegi 15, Selfossi, kl. 10-18.
Kosningavaka frá kl. 20.
Hafnargötu 60, Reykjanesbæ, kl. 10-18.
Kosningavaka frá kl 20.
Brúin Grindavík, kl. 12-18.
Norðausturkjördæmi
Tryggvabraut 24, Akureyri, frá kl. 10.
Tjarnarbraut 21, Egilsstöðum, frá kl. 10.
Norðvesturkjördæmi
Stillholti 23, Akranesi, kl. 12-22.
HHBhH1
AKSTUR A KJORDAG
Miðflokkurinn býður upp á akstur á kjörstaðr
Höfuðborgarsvæðið - s: 664 0950
Suðurkjördæmi
Reykjanesbær - s: 837 7500
Selfoss - s: 662 5599
Norðausturkjördæmi
Akureyri - s: 837 6500
Egilsstaðir - s: 868 3300
Norðvesturkjördæmi
Akranes - s: 892 2879
xPm
MIÐFLOKKURINN