Fréttablaðið - 28.10.2017, Page 28

Fréttablaðið - 28.10.2017, Page 28
28 HELGIN ■ FRÉTTABLAÐIÐ 28. OKTÓBER 2017 LAUGARDAGUR Kristjana Björg Gudbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Braust inn til viðskiptavinar Þórarinn Ævarsson, framkvæmda- stjóri IKEA, starfaöi um árabil hjá Domino’s. Á árunum 1994 til 1995 var hann rekstrarstjóri keöjunnar og verslunarstjóri í Grensásútibúi. „Þá voru læti á næturnar. Þaö var opið hjá okkur til klukkan sex á morgnana en skemmtistaðir lok- uöu klukkan 3. Þaö var snarvitlaust aö gera hjá okkur frá klukkan þrjú til fímm á næturnar og þaö má segja aö þaö hafi verið líflegur tími hjá pítsasendlum en líka í útibúunum. Fólk var aö koma af djamminu og vildi fá sér pítsu,“ segir Þórarinn. „Sumir sendlanna lentu í alls konar ævintýrum. Þaö voru ber- rassaðar konur aö bíöa eftir þeim í pottunum og svona," segir hann og skellir upp úr. Þótt Þórarinn hafi verið rekstrar- stjóri fyrirtækisins á þessum tíma sendist hann stundum meö pítsur. Einn af tryggum fastakúnnum fyrir- tækisins pantaöi oft pitsur eftir að hafa fariö á ball og því miöur henti þaö nokkrum sinnum aö hann var sofnaður áfengisdauða þegar pítsu- sendillinn hringdi bjöllunni. „Ég ákvaö bara aö fara sjálfur með píts- una, var kominn meö nóg af þessu. Ég hringdi bjöllunni og auövitað var ekkert svar. Þegar ég leit inn um gluggann hjá honum sá ég aö hann liggur steinsofandi áfengisdauöa. Þetta var á fallegu vorkvöldi og ég ákvaö aö brjótast inn til hans. Ég skreið inn um glugga með pítsuna, skellti henni svo á boröiö og vakti hann. Hann vaknaði með and- fælum, greyiö, og varö fyrir algjöru áfalli. Var löngu búinn að gleyma því aö hann heföi pantað sér pítsu. En þaö gerðist aldrei aftur aö hann sofnaði eftir aö hafa pantað sér pítsu," segir Þórarinn og skellir upp úr og viðurkennir aö vissu- lega hafi þetta veriö óvanalegt inngrip í líf viöskiptavinar. Spegillinn I forstofunni Þórarinn rifjar einnig upp atvik sem honum fannst fremur neyöarlegt. „Þekkt ’ athafnakona og samkvæmis- ljón, sem haföi t.a.m. látið til sín taka í stjórnmálum pantaöi eitt sinn pítsu heim til sín í vesturbæ Reykjavíkur um miöjan dag. Einhverra hluta vegna vantaöi sendla og ég skaust meö pítsuna. Þaö var rólegt að gera, lítil umferö og var ég kominn heim til hennar innan við kort- eri eftir aö hún pantaði. Hún haföi greinilega Pítsusendlar segja frá Pítsusendlar gægjast inn í líf fólks í gegnum þrönga dyragættina. Þeir fá að kynnast öllum hliðum mannlífsins og lenda oft í spaugi- legum aðstæðum. Nokkrir núverandi og fyrrverandi pítsusendlar segja sögur af ævintýralegum uppákomum í sendiferðum. ekki átt von á aö sendillinn yröi þetta snöggur, því þegar hún kom til dyra var hún greinilega nýkomin úr sturtu. Hún var kviknakin, en faldi sig á bak viö hurðina þannig aö hausinn á henni var þaö eina sem sást. Þaö sem henni hins vegar yfirsást var aö það var stærðarinnar spegill í forstofunni, beint aftan við hana og hún heföi allt eins getaö opnaö hurðina upp á gátt, því ég var þarna óvænt í stúkusæti.” Giftist systur sendilsins „En svo grípa örlögin í taumana," segir hann frá. „Ég réð til mín sendil úr Dölunum, sveitadreng sem var nýkominn til borgarinnar. Hann Ölvir Styrr, hann byrjaði nú á því aö klessukeyra einn sendlabílinn. Hann var klesstur á öllum hliðum. Ég þurfti aö ákveöa hvort ég vildi hafa hann áfram í vinnu. Var nú ekki viss, en sá eitthvað í honum. Það var nú ágætt aö ég þaö. Hann er yfir öllum tölvu- málum í IKEA í dag og einn minna nánustu samstarfsfélaga og vina. Fyrir utan það aö ég giftist systur hans og á með henni þrjú börn," segir Þórarinn. Eftir þessa frásögn er ekki annað hægt en aö slá á Ölvi Styr Sveinsson, yfirmann tölvumála hjá IKEA. „Þaö eru svo margar sögur. Hausinn er fullur af þeim. Sumar eru reyndar ekkert fyndnar, heldur bara skelfilegar. Sérstaklega á þess- um tíma sem var opið til klukkan sex á morgnana og maöur var aö mæta með pítsur til fólks í misjöfnu ástandi eftir djammið. Svo var bara eftirpartí í útibúunum. Þau fylltust af fólki. Þetta var stemning sem er ekki lengur,“ segir Ölvir Styrr. Hótuðu barsmíðum Á þessum tíma fengu viðskipta- menn pítsuna fría ef hún var ekki komin innan þrjátíu mínútna. Nokkrir svartir sauöir í hópi viöskiptavina stunduðu þaö að tefja fyrir pítsa- sendlum. Ef þeir áttu heima á jaröhæö í háhýsi pöntuöu þeir samt pítsuna upp á tólftu hæö. Slökktu svo ljós- in í stigagangin- um og svöruöu ekki dyrabjöll- unni. Sumir reyndu meira aö segja aö setja upp vegar- tálma á götum borgarinnar til að tefja sendlana. Og þá voru það þeir sem gripu til þess ráðs þegar þeir voru auralausir aö segjast eiga inni fría pítsu frá eiganda fyrirtækisins. „Ég lenti oft í því aö fólk hringdi og sagði að eigandi Domino's hefði sagt aö það ætti að fá fría pítsu. Það 99 HÚN VAR KVIKNAKIN, ENFALDISIGÁBAKVIÐ HURÐINA ÞANNIG AÐ HAUSINN A HENNIVAR ÞAÐ EINA SEM SÁST. ÞAD SEMHENNIHINS VEGAR YFIRSÁST VAR AÐ ÞAÐ VAR STÆRÐARINNAR SPEGILL í FORSTOFUNNI, BEINT AFTANVIÐ HANA. var auðvitað elcki í myndinni og þegar maöur sagði fólki það fékk maður hótanir. Eg veit ekki hversu margir sögöust ætla að berja mig. Eigendur fyrirtækisins gáfu mér á endanum leyfi til aö hreinlega skella á þetta óöa fólk. Þaö fannst mér mjög gaman,“ segir hann. 12 mínútur Eitt sinn tókst honum aö senda viðskiptavini pítsu á tólf mínútum. „Viö vorum meö númerabirti og tölvukerfi sem tengdist númerum sem var hringt úr. Þannig sáum við heimilisföng fólks og síöustu pant- anir. Þótti mjög framúrstefnulegt á sínum tíma. Ég tók upp símann, fletti upp númerinu. Er þetta Jón? Já, svaraöi hann. Ætlarðu aö fá Domino’s Classic og ískalda kók meö? Já, svaraði hann forviöa. Svo sleit ég bara símtalinu. Geröi pítsuna klára í ofn á einni mínútu. Ofninn funheitur og sjö mínútum seinna var ég lagöur af staö með pítsuna. Hringdi dyrabjöllunni nákvæmlega tólf mínútum seinna. Jón lcom til dyra og var eitt spurn- ingamerld. Hann leit aftur fyrir sig á heimasímann sem hann hringdi úr og ég held hann hafi haldið aö hann væri aö missa sig. Ertu kominn? spuröi hann gjörsamlega forviöa.” Tveggja bakka keppnin Ölvir segir aö eftir aö hann klessu- keyrði sendlabílinn hafi hann lagt allt lcapp á aö standa sig vel. „Eg fékk stöðuhækkun og varð pítsu- bakari. Það var lítiö annað að gera en aö verða fljótari aö gera pítsur en yfirmaðurinn. Um aldamótin fór ég til Bretlands að keppa í svokallaðri „Two-Tray Competition". Þetta er semsagt keppni í pítsugerö. Og var hún með því sniöi á þessum tíma aö maður þurfti að fletja út fjórtán pítsur, sex 15” og átta 12” og sósa þær. Pítsurnar urðu að sjálfsögðu aö vera fullkomnar. Ég fór út til Bretlands og keppti í þessu og varð í ööru sæti og komst með því í aðal- keppnina í Bandaríkjunum. Þetta var mjög spennandi, aðal- keppnin var á furðulegum stað, Hilton hótelinu á Miami Beach, af öllum stöðum (James Bond, Gold- finger). Ég fór með honum Finn- birni Ólafssyni pítsumeistara (sem var þjálfarinn minn) og vorum við í æfingabúðum í vilcu áöur en keppn- in var. Allt frekar svona amerískt og skrítið. Ég hafði nú svo sem lítið aö gera í keppnina og man ekki betur en ég hafi veriö síðastur, en metiö mitt var nú samt sem áður að gera þessar fjórtán pítsur á 2 mínútum og 34 sekúndum. Gaurinn sem vann var undir 2 mínútum, minnir mig, og vann 10 þúsund dollara og fékk svo Ferrari í bónus.” Það sem ekki var sótt. Ölvir og Þórarinn tóku upp á því að gefa pítsur sem ekki voru sóttar eöa gerðar fyrir mistök niöur á lögreglu- stöð. „Þetta byrjaöi sem brandari því einhvern tíma var sendill eöa tveir hirtir fyrir aö keyra óvarlega. En kannski átti ég svolítið sök á þessu því hann stjúpi minn vann á umferðardeild og var oft á nætur- vöktum. En umferöardeildin varö fljótt feit og pattaraleg þannig að viö tókum upp þá óskrifuöu reglu aö gefa þessar pítsur á spítala, slökkvistöövar og lögreglustöövar út um allt höfuöborgarsvæðiö. Veit svo sem ekki hvort þetta er gert enn þann dag i dag en út frá þessu tókum viö upp þá reglu aö senda tveir fyrir einn tilboðið á þessa sömu staöi og veit ég aö þessi óskrifaða regla gildir enn í dag hjá Domino’s Pizza sem erfrábært!"

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.