Fréttablaðið - 28.10.2017, Side 42

Fréttablaðið - 28.10.2017, Side 42
42 HELGIN • FRÉTTABLAÐIÐ 28. OKTÓBER 2017 LAUGARDAGUR H írgang^r. 175. íbl, — Miðvikttdagrar S. ágtiat liHð ísaföJtlitrprtíatatáíðla L f Stórkostlegasta uppfynding vésindanna: ATOMORKAN BEISLUÐ Sprengjur sem þurka út heilar borgir Gjörbreyting á hern- aðnraðierðum Tveir kostir Japana: Uppgjöi, eða eyðing „Getur orðið mann- kyninu til biessun- ar, eða tortímingar“ Londuii i gí*'ikvi>Edi Emkank&yíí tíi Mbi f*á R^ut<>f „HiN NÝJA UPPFVNDING VÍSINDA- MAN.NA bandamanna, aðferðin tii að hagnýta tirku atomsíns, f?r þýðmgarmeirt en uppfyrtding raforkumtar“, sagði Sír John Anderson i útvarpi í kvold. En hann c?r maðurimi. sem Churehill fól við stjóma og haía eftirlit með alomrannsóknum v tsmdamanrianna er mtkið vandamál að stjuma fieiiTÍ óhentju orku. fundin hefir verið Tæki, setn notaí er við atom- sprengingar Lorulodi { gartkwiaí. Ktnka&k*3ítl tíi MbE n-á Rvtítiff. BKESKIR OG BANDAKÍSKIR vUndamenn hafa fundið upp aðferð til að hagnýta orku atoms-- rhs. Er þetta álitin eínhver mesta uppfynding, sem uokkru sœm hefir verið gerð. og getur huiv haft metri þýðingu fyrtr marmkynið en cokkur onmir vismdaieg uppgotvun, sem kunn er iii þessa Með þessari orku hefir iekist aðframleiða sprc'itgju tikí Handhafar tortímingarinnar StefánPálssonskrif- ar um smáríki með kjarnorkudrauma. 'W'ýveriö tilkynnti Nóbelsnefnd norska stórþingsins aö friðarverölaun Nóbels árið 2017 féllu í skaut ICAN, alþjóðlegra baráttusamtaka gegn kjarnorkuvopnum. Margir hafa orðið til að fagna þessum tíðindum og benda á að með valinu sé nefndin að fylgja stofnskrá verðlaunanna, en mikill misbrestur hefur verið á því í gegnum tíðina. Reglur friðarverð- launa Nóbels segja nefnilega berum orðum að þau skuli veita þeim sem vinna að friöi og afvopnun. Á liðn- um áratugum hefur nefndin hins vegar farið á svig við þau fyrirmæli, meðal annars með því að verðlauna baráttufólk á sviði mannúðarmála, mannréttindabaráttu og umhverfis- verndar - sem allt eru hin ágætustu málefni en falla þó ekki undirflokk- inn friðar- og afvopnunarmál. ICAN-samtökin hafa beitt sér fyrir alþjóðlegu banni við kjarn- orkuvopnum á vegum Sameinuðu þjóðanna og varð slíkur sáttmáli að veruleika nú í sumar. Rúmlega fimmtíu ríki hafa þegar undirritað sáttmálann og er vonast til að þeim muni fjölga hratt á næstu misserum. Markmið um útrýmingu kjarna- vopna eru hluti af gildandi afvopn- unarsamningum og þá sérstaklega NPT-sáttmálanum um bann við frekari útbreiðslu kjarnavopna. Kjarnorltuveldin hafa hins vegar lítið Trumkvæði sýnt í þá átt að losa sig við sprengjurnar og því varð niður- staðan sú að berjast fyrir samþykkt hins nýja sáttmála. Úrtölumenn telja að samningur af þessu tagi hafi ekkert að segja og benda á að frá því að Bandaríkin vörpuðu kjarnavopnum á Hirosh- ima og Nagasaki árið 1945 hafi kjarnaveldunum fjölgað jafnt og þétt. Þann hóp skipa nú auk Banda- ríkjamanna: Rússland, Bretland, Frakkland, Kína, Indland, !srael, Pakistan og síðast Norður-Kórea. Saga kjarnorkuvígvæðingar er hins vegar flóknari en svo að hún stefni bara í eina átt. Áður hefur á þessum vettvangi verið fjallað um kjarnorku- vopnabúr Suður-Afrílaistjórnar, sem 'sjálf tók þá ákvörðun að farga vopn- um sínum. Og telja mætti til fjölda 9» ... KJARN0RKUVOPN VÆRU ANNAÐ 0G MEIRA EN BARA SÉRLEGA KRAFT- MIKLAR SPRENGJUR... ríkja sem hófu vinnu viö smíöi kjarn- orkuvopna en hurfu frá því af ýmsum ástæðum. Tvö þeirra ríkja sem fýrst reyndu að feta í fótspor Bandaríkja- hers á kjarnorkusviðinu voru Evr- ópulönd sem fæstir tengja við hern- aðarbrölt og vígbúnaðarkapphlaup. Það voru Sviss og Noregur. Vopn framtíðarinnar? Fáir einstakir atburðir hafa komið meira róti á hugi manna en kjarn- orkusprengjan í Hiroshima. Morgun- blaðið lagði alla forsíðu sína undir fréttina og kallaði „mestu upp- fyndingu vísindanna". Allir gerðu sér grein fyrir því að kjarnorkuvopn væru annað og meira en bara sérlega kraftmiklar sprengjur, með beislun kjarnorluinnar væri brotið blað og upp væri runninn tími nýrrar tækni sem yrði mannkyninu annaðhvort til blessunar eða tortímingar. Árásirnar á Hiroshima og Nag- asaki mörkuðu lok seinni heims- styrjaldarinnar, en um leið má telja þær einn af upphafspunktum kalda stríðsins. Árásirnar á borgirnar tvær voru í senn hefndaraðgerð í garð Japana og hótun um yfirvofandi gjör- eyðingu en jafftframt voru þær ætl- aðar sem sýnikennsla fýrir Sovétríkin á hernaðarmætti Bandaríkjanna. Engum kom á óvart að stjórnvöld í Moskvu hæfu þegar í stað vinnu við að smíða sínar eigin kjarnasprengjur, hins vegar bjuggust fáir við að það tækist jafn skjótt og raun bar vitni. í Sviss fylgdust pólitíkusar og her- málayfirvöld með heimsfréttunum af áhuga. Svisslendingum tókst að standa utan við báðar heimsstyrjald- irnar og rak landið stífa hlutleysis- stefftu, en kappkostaði á sama tíma að eiga sem öflugastan her. Þegar fregnir bárust af hinu nýja vopni sperrtu stjórnendur hersins eyrun. Ef framfarir á sviði kjarnorkutækn- innar yrðu eins örar og sumir töldu, gæti útbreiðsla kjarnavopna sömu- leiðis orðið hröð. Áður en ágústmánuður 1945 var liðinn, hafði herinn sent svissnesku ríkisstjórninni leynileg skilaboð þar sem óskað var eftir því að fá að þróa kjarnasprengjur. Leyfið fékkst í nóvember og þá þegar var hrint af stað áætlun undir stjórn vísinda- mannsins Pauls Scherrer. Scherrer var kunnasti kjarneðlisfræðingur Svisslendinga og hafði komið til Bandaríkjamanna upplýsingum um stöðu kjarnorkuáætlunar Þjóðverja á stríðsárunum. Hann var einarður hvatamaður þess að Sviss eignaðist kjarnorkuvopn, þótt í dag sé hans fremur minnst fyrir friðsamlegri vísindastörf, einkum fyrir þátt sinn í stofftun rannsóknarstofunnar CERN. Fyrstu árin var kjarnorkuáætl- unin þó vart starfrækt nema að nafninu til, þar sem litlir fjár- munir fengust til verksins. Innrás Sovétmanna í Ungverjaland árið 1956 og vangaveltur um að Vestur- Þjóðverjar kynnu að koma sér upp slíkum vopnum, urðu þó til að blása lífi í glæðurnar. Á árinu 1957 lét her- málaráðuneytið vinna leyniskýrslu um kosti og galla kjarnorkuvopna- eignar. í skýrslunni var eindregið hvatt til þess að landið kæmi sér upp slíkum vopnum og árið eftir lýsti svissneska ríkisstjórnin því yfir að þótt hún væri í grundvallaratriðum hlynnt kröfunni um kjarnorku- vopnalausan heim, þá kynni svo að fara að landið neyddist til að eignast sínar sprengjur. Ákvörðunin mæltist misjafnlega fyrir og vakti hörð viðbrðgð sviss- neskra friðarsinna. í lcrafti hinnar frjálslegu löggjafar í Sviss um þjóðar- atkvæðagreiðslur, knúðu þeir í gegn kosningu um bann við kjarnorku- vopnum árið 1962, en nærri tveiraf hverjum þremur kjósendum höfn- uðu tillögunni. Svipuð tillaga var felld árið eftir með litlu minni mun. Næstu misserin kepptust Sviss- lendingar við að afla sér hráefna til kjarnorkuvopnaframleiðslu, þar á meðal auðgaðs úrans frá Belgíska- Kongó. Samningar um kaup á plút- óníum frá Norðmönnum gengu hins vegar ekki eftir. Efnunum var safnað saman á öruggum stað, auk þess sem hernaðaryfirvöld tryggðu sér stórt mannlaust landsvæði með tilraunasprengingar í huga. Yfirlýst markmið svissneska hersins var aö eignast 250 kjarnasprengjur og að búa yfir flugvélum sem varpað gætu slíkum vopnum á Moskvu. Tortryggnir grannar Þótt Sovétríkin ættu þannig að heita aðalástæða þess að Sviss stefndi að kjarnorkuvopnaeign stóð nágranna- löndunum ekki á sama. Þannig varð tilkynning Svisslendinga árið 1958 til þess að ítalir ákváðu árið eftir að óska eftir því að bandarísk kjarnorkuvopn yrðu flutt til Ítalíu. Skömmu síðar hófu ítalir undirbún- ing að smíði sinna eigin kjarnorku- vopna og stóð sú vinna með hléum til ársins 197 5 þegar þeir létu undan ERTU LÖNGU HÆTT/UR AÐ REYKJA EN SITUR UFPIMEÐ SKEMMDIRNAR! Supreme Demantshúðslípun + Intraceuticals "Hollywood-meðferð" Fyrir þó sem gera kröfur um gæði og árangur Tilboð í október Snyrtistofan Hafblik Hlíðasmóra 9 • Kápavogi • S. 893 0098 • snyrt@snyrl.is • www.snyrt.is Saga tilnæsta bæjar bandarískum þrýstingi og lögðu áformin á hilluna. Kostnaðurinn við kjarnorku- áætlun Svisslendingá fór langt fram úr áætlunum, sem kætti lítt aðhalds- sama stjórnmálamenn í landinu. Þegar við bættist alvarlegt óhapp í kjarnakljúfi verkefnisins á árinu 1969 var ákveðið aö slá þaö út af borðinu. Síðar sama ár gerðist Sviss aöili að NPT-sáttmálanum í óþökk hermálaráðuneytisins. Þar með var frekari kjarnorkuvopnaþróun Sviss orðin ólögmæt samkvæmt alþjóða- lögum. Síðar kom í ljós að herinn hélt lífi í verkefninu á laun, með vit- und ríkisstjórnarinnar allt til ársins 1988 þegar því var endanlega slitið. Skiptar skoðanir eru meðal fræði- manna á því hversu langt Sviss- lendingar áttu í land með að smíða kjarnorkusprengjur þegar árið 1969. Svo virðist sem aðhaldssemi stjórnvalda í fjárveitingum hafi í raun ráðið meiru um útkomuna en tæknilegir þættir. Þá ber öllum saman um að það hafi verið mikið áfall fyrir áætlunina þegar plútón- íum-viðskiptin við Norðmenn fóru út um þúfur. Þunga vatnið og sprengjan Norðmenn voru raunar áhrifavaldar varðandi kjarnorkuáform ýmissa rílcja, ekki hvað síst sem mikilvæg- ustu framleiðendur þungs vatns, sem er nauðsynlegt við framleiðslu kjarnavopna. Þannig voru það Norðmenn sem seldu Israelsstjórn þunga vatnið sem að lokum var notað til kjarnorkusprengjugerðar. Rúmenar voru einnig í hópi við- skiptavina Norðmanna á þessu sviði. Ceausescu-stjórnin í Búkarest var lengi utanveltu í hópi kommún- istastjórna Austur-Evrópu. Á níunda áratugnum hóf hún sína eigin kjarnorkuvopnaáætlun, raunar á sama tíma og Rúmenía gagn- rýndi hástöfum risaveldin tvö fyrir vopnakapphlaup sitt. Flett var ofan af þessum áformum eftir stjórnar- skiptin í landinu í árslok 1989, en þá kom jafnframt í ljós að hluti af þunga vatninu frá Noregi hafði verið áframseldur til Indverja. Sjálfir höfðu Norðmenn tekið snemma við sér á kjarnorkusvið- inu. Þegar árið 1946 völctu lcjarn- eðlisfræðingar í landinu athygli ríkisstjórnarinnar og hersins á framtíðarmöguleikum kjarnorku í hernaði, en nokkrir norskir eðlis- fræðingar höfðu unnið að þróun kjarnorkuvopna fýrir bresku stjórn- ina í striðinu. Herseta Þjóðverja á stríðsárunum var landsmönnum í ferslcu minni og með því að eignast kjarnorkusprengjur töldu sumir að unnt væri að koma í veg fyrir inn- rásir miklu öflugri og ljölmennari nágrannaríkja. Ahugi hersins var vakinn og sendi norska ríkisstjórnin eðlisfræðinga til Bandaríkjanna í því skyni að afla upplýsinga um gerð þessara vopna. Vestanhafs fengu fulltrúarnir kurt- eislegar móttökur, enda Noregur skilgreindur sem vinaland Banda- ríkjanna, en þess var þó rækilega gætt að þeir fengju ekki aðgang að neinum mikilvægum gögnum. Vegna náttúruauðlinda sinna voru Norðmenn sérlega áhuga- samir um kjarnorkutæknina. Fyrsti kjarnakljúfurinn í tilraunaskyni var reistur í landinu þegar árið 1951, en fyrir þann tíma bjuggu einungis Bandaríkjamenn, Sovétmenn, Bret- ar og Frakkar yfir slíkri tækni. Því var ekki að undra þótt bandaríska leyniþjónustan fylgdist grannt með fyrirætlunum Norðmanna. Stjórnvöld í Washington voru lítt hrifin af því að önnur ríki döðruðu við kjamorkuvopnin og reyndu tals- vert að þrýsta á félaga sína í Ósló um að láta af slíku. Ýmsir innan norsku stjórnarinnar vildu ekki reita Bandaríkjamenn til reiði, en hermálaráðherrann Jens Christian Hauge barðist á móti og vildi elcki útiloka hernaðarleg not Noregs af kjarnorkutækninni. Með stofnun NATO og inngöngu Noregs árið 1949 var öllum slíkum hugmyndum þó varpað íyrir róða. Noregur missti því af þeim vafasama heiðri að verða fámennasta kjarnorkuveldið.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.