Fréttablaðið - 28.10.2017, Blaðsíða 42
42
HELGIN • FRÉTTABLAÐIÐ
28. OKTÓBER 2017 LAUGARDAGUR
H írgang^r. 175. íbl, — Miðvikttdagrar S. ágtiat liHð ísaföJtlitrprtíatatáíðla L f
Stórkostlegasta uppfynding vésindanna:
ATOMORKAN BEISLUÐ
Sprengjur sem þurka út heilar borgir
Gjörbreyting á hern-
aðnraðierðum
Tveir kostir Japana:
Uppgjöi, eða eyðing
„Getur orðið mann-
kyninu til biessun-
ar, eða tortímingar“
Londuii i gí*'ikvi>Edi Emkank&yíí tíi Mbi
f*á R^ut<>f
„HiN NÝJA UPPFVNDING VÍSINDA-
MAN.NA bandamanna, aðferðin tii að hagnýta
tirku atomsíns, f?r þýðmgarmeirt en uppfyrtding
raforkumtar“, sagði Sír John Anderson i útvarpi
í kvold. En hann c?r maðurimi. sem Churehill fól
við stjóma og haía eftirlit með alomrannsóknum
v tsmdamanrianna er mtkið vandamál að
stjuma fieiiTÍ óhentju orku. fundin hefir verið
Tæki, setn notaí
er við atom-
sprengingar
Lorulodi { gartkwiaí. Ktnka&k*3ítl tíi MbE
n-á Rvtítiff.
BKESKIR OG BANDAKÍSKIR vUndamenn
hafa fundið upp aðferð til að hagnýta orku atoms--
rhs. Er þetta álitin eínhver mesta uppfynding, sem
uokkru sœm hefir verið gerð. og getur huiv
haft metri þýðingu fyrtr marmkynið en cokkur
onmir vismdaieg uppgotvun, sem kunn er iii þessa
Með þessari orku hefir iekist aðframleiða sprc'itgju
tikí
Handhafar
tortímingarinnar
StefánPálssonskrif-
ar um smáríki með
kjarnorkudrauma.
'W'ýveriö tilkynnti
Nóbelsnefnd
norska stórþingsins
aö friðarverölaun
Nóbels árið 2017
féllu í skaut ICAN,
alþjóðlegra baráttusamtaka gegn
kjarnorkuvopnum. Margir hafa
orðið til að fagna þessum tíðindum
og benda á að með valinu sé nefndin
að fylgja stofnskrá verðlaunanna, en
mikill misbrestur hefur verið á því í
gegnum tíðina. Reglur friðarverð-
launa Nóbels segja nefnilega berum
orðum að þau skuli veita þeim sem
vinna að friöi og afvopnun. Á liðn-
um áratugum hefur nefndin hins
vegar farið á svig við þau fyrirmæli,
meðal annars með því að verðlauna
baráttufólk á sviði mannúðarmála,
mannréttindabaráttu og umhverfis-
verndar - sem allt eru hin ágætustu
málefni en falla þó ekki undirflokk-
inn friðar- og afvopnunarmál.
ICAN-samtökin hafa beitt sér
fyrir alþjóðlegu banni við kjarn-
orkuvopnum á vegum Sameinuðu
þjóðanna og varð slíkur sáttmáli
að veruleika nú í sumar. Rúmlega
fimmtíu ríki hafa þegar undirritað
sáttmálann og er vonast til að þeim
muni fjölga hratt á næstu misserum.
Markmið um útrýmingu kjarna-
vopna eru hluti af gildandi afvopn-
unarsamningum og þá sérstaklega
NPT-sáttmálanum um bann við
frekari útbreiðslu kjarnavopna.
Kjarnorltuveldin hafa hins vegar lítið
Trumkvæði sýnt í þá átt að losa sig
við sprengjurnar og því varð niður-
staðan sú að berjast fyrir samþykkt
hins nýja sáttmála.
Úrtölumenn telja að samningur
af þessu tagi hafi ekkert að segja og
benda á að frá því að Bandaríkin
vörpuðu kjarnavopnum á Hirosh-
ima og Nagasaki árið 1945 hafi
kjarnaveldunum fjölgað jafnt og
þétt. Þann hóp skipa nú auk Banda-
ríkjamanna: Rússland, Bretland,
Frakkland, Kína, Indland, !srael,
Pakistan og síðast Norður-Kórea.
Saga kjarnorkuvígvæðingar er hins
vegar flóknari en svo að hún stefni
bara í eina átt. Áður hefur á þessum
vettvangi verið fjallað um kjarnorku-
vopnabúr Suður-Afrílaistjórnar, sem
'sjálf tók þá ákvörðun að farga vopn-
um sínum. Og telja mætti til fjölda
9»
... KJARN0RKUVOPN
VÆRU ANNAÐ 0G MEIRA
EN BARA SÉRLEGA KRAFT-
MIKLAR SPRENGJUR...
ríkja sem hófu vinnu viö smíöi kjarn-
orkuvopna en hurfu frá því af ýmsum
ástæðum. Tvö þeirra ríkja sem fýrst
reyndu að feta í fótspor Bandaríkja-
hers á kjarnorkusviðinu voru Evr-
ópulönd sem fæstir tengja við hern-
aðarbrölt og vígbúnaðarkapphlaup.
Það voru Sviss og Noregur.
Vopn framtíðarinnar?
Fáir einstakir atburðir hafa komið
meira róti á hugi manna en kjarn-
orkusprengjan í Hiroshima. Morgun-
blaðið lagði alla forsíðu sína undir
fréttina og kallaði „mestu upp-
fyndingu vísindanna". Allir gerðu
sér grein fyrir því að kjarnorkuvopn
væru annað og meira en bara sérlega
kraftmiklar sprengjur, með beislun
kjarnorluinnar væri brotið blað og
upp væri runninn tími nýrrar tækni
sem yrði mannkyninu annaðhvort
til blessunar eða tortímingar.
Árásirnar á Hiroshima og Nag-
asaki mörkuðu lok seinni heims-
styrjaldarinnar, en um leið má telja
þær einn af upphafspunktum kalda
stríðsins. Árásirnar á borgirnar tvær
voru í senn hefndaraðgerð í garð
Japana og hótun um yfirvofandi gjör-
eyðingu en jafftframt voru þær ætl-
aðar sem sýnikennsla fýrir Sovétríkin
á hernaðarmætti Bandaríkjanna.
Engum kom á óvart að stjórnvöld í
Moskvu hæfu þegar í stað vinnu við
að smíða sínar eigin kjarnasprengjur,
hins vegar bjuggust fáir við að það
tækist jafn skjótt og raun bar vitni.
í Sviss fylgdust pólitíkusar og her-
málayfirvöld með heimsfréttunum
af áhuga. Svisslendingum tókst að
standa utan við báðar heimsstyrjald-
irnar og rak landið stífa hlutleysis-
stefftu, en kappkostaði á sama tíma
að eiga sem öflugastan her. Þegar
fregnir bárust af hinu nýja vopni
sperrtu stjórnendur hersins eyrun.
Ef framfarir á sviði kjarnorkutækn-
innar yrðu eins örar og sumir töldu,
gæti útbreiðsla kjarnavopna sömu-
leiðis orðið hröð.
Áður en ágústmánuður 1945 var
liðinn, hafði herinn sent svissnesku
ríkisstjórninni leynileg skilaboð
þar sem óskað var eftir því að fá að
þróa kjarnasprengjur. Leyfið fékkst
í nóvember og þá þegar var hrint
af stað áætlun undir stjórn vísinda-
mannsins Pauls Scherrer. Scherrer
var kunnasti kjarneðlisfræðingur
Svisslendinga og hafði komið til
Bandaríkjamanna upplýsingum um
stöðu kjarnorkuáætlunar Þjóðverja
á stríðsárunum. Hann var einarður
hvatamaður þess að Sviss eignaðist
kjarnorkuvopn, þótt í dag sé hans
fremur minnst fyrir friðsamlegri
vísindastörf, einkum fyrir þátt sinn í
stofftun rannsóknarstofunnar CERN.
Fyrstu árin var kjarnorkuáætl-
unin þó vart starfrækt nema að
nafninu til, þar sem litlir fjár-
munir fengust til verksins. Innrás
Sovétmanna í Ungverjaland árið
1956 og vangaveltur um að Vestur-
Þjóðverjar kynnu að koma sér upp
slíkum vopnum, urðu þó til að blása
lífi í glæðurnar. Á árinu 1957 lét her-
málaráðuneytið vinna leyniskýrslu
um kosti og galla kjarnorkuvopna-
eignar. í skýrslunni var eindregið
hvatt til þess að landið kæmi sér upp
slíkum vopnum og árið eftir lýsti
svissneska ríkisstjórnin því yfir að
þótt hún væri í grundvallaratriðum
hlynnt kröfunni um kjarnorku-
vopnalausan heim, þá kynni svo að
fara að landið neyddist til að eignast
sínar sprengjur.
Ákvörðunin mæltist misjafnlega
fyrir og vakti hörð viðbrðgð sviss-
neskra friðarsinna. í lcrafti hinnar
frjálslegu löggjafar í Sviss um þjóðar-
atkvæðagreiðslur, knúðu þeir í gegn
kosningu um bann við kjarnorku-
vopnum árið 1962, en nærri tveiraf
hverjum þremur kjósendum höfn-
uðu tillögunni. Svipuð tillaga var
felld árið eftir með litlu minni mun.
Næstu misserin kepptust Sviss-
lendingar við að afla sér hráefna til
kjarnorkuvopnaframleiðslu, þar á
meðal auðgaðs úrans frá Belgíska-
Kongó. Samningar um kaup á plút-
óníum frá Norðmönnum gengu
hins vegar ekki eftir. Efnunum var
safnað saman á öruggum stað, auk
þess sem hernaðaryfirvöld tryggðu
sér stórt mannlaust landsvæði með
tilraunasprengingar í huga. Yfirlýst
markmið svissneska hersins var aö
eignast 250 kjarnasprengjur og að
búa yfir flugvélum sem varpað gætu
slíkum vopnum á Moskvu.
Tortryggnir grannar
Þótt Sovétríkin ættu þannig að heita
aðalástæða þess að Sviss stefndi að
kjarnorkuvopnaeign stóð nágranna-
löndunum ekki á sama. Þannig
varð tilkynning Svisslendinga árið
1958 til þess að ítalir ákváðu árið
eftir að óska eftir því að bandarísk
kjarnorkuvopn yrðu flutt til Ítalíu.
Skömmu síðar hófu ítalir undirbún-
ing að smíði sinna eigin kjarnorku-
vopna og stóð sú vinna með hléum
til ársins 197 5 þegar þeir létu undan
ERTU LÖNGU HÆTT/UR AÐ REYKJA EN
SITUR UFPIMEÐ SKEMMDIRNAR!
Supreme Demantshúðslípun + Intraceuticals
"Hollywood-meðferð"
Fyrir þó sem gera kröfur um
gæði og árangur
Tilboð í október
Snyrtistofan Hafblik
Hlíðasmóra 9 • Kápavogi • S. 893 0098 • snyrt@snyrl.is • www.snyrt.is
Saga
tilnæsta
bæjar
bandarískum þrýstingi og lögðu
áformin á hilluna.
Kostnaðurinn við kjarnorku-
áætlun Svisslendingá fór langt fram
úr áætlunum, sem kætti lítt aðhalds-
sama stjórnmálamenn í landinu.
Þegar við bættist alvarlegt óhapp
í kjarnakljúfi verkefnisins á árinu
1969 var ákveðið aö slá þaö út af
borðinu. Síðar sama ár gerðist Sviss
aöili að NPT-sáttmálanum í óþökk
hermálaráðuneytisins. Þar með var
frekari kjarnorkuvopnaþróun Sviss
orðin ólögmæt samkvæmt alþjóða-
lögum. Síðar kom í ljós að herinn
hélt lífi í verkefninu á laun, með vit-
und ríkisstjórnarinnar allt til ársins
1988 þegar því var endanlega slitið.
Skiptar skoðanir eru meðal fræði-
manna á því hversu langt Sviss-
lendingar áttu í land með að smíða
kjarnorkusprengjur þegar árið
1969. Svo virðist sem aðhaldssemi
stjórnvalda í fjárveitingum hafi í
raun ráðið meiru um útkomuna
en tæknilegir þættir. Þá ber öllum
saman um að það hafi verið mikið
áfall fyrir áætlunina þegar plútón-
íum-viðskiptin við Norðmenn fóru
út um þúfur.
Þunga vatnið og sprengjan
Norðmenn voru raunar áhrifavaldar
varðandi kjarnorkuáform ýmissa
rílcja, ekki hvað síst sem mikilvæg-
ustu framleiðendur þungs vatns,
sem er nauðsynlegt við framleiðslu
kjarnavopna. Þannig voru það
Norðmenn sem seldu Israelsstjórn
þunga vatnið sem að lokum var
notað til kjarnorkusprengjugerðar.
Rúmenar voru einnig í hópi við-
skiptavina Norðmanna á þessu
sviði. Ceausescu-stjórnin í Búkarest
var lengi utanveltu í hópi kommún-
istastjórna Austur-Evrópu. Á níunda
áratugnum hóf hún sína eigin
kjarnorkuvopnaáætlun, raunar
á sama tíma og Rúmenía gagn-
rýndi hástöfum risaveldin tvö fyrir
vopnakapphlaup sitt. Flett var ofan
af þessum áformum eftir stjórnar-
skiptin í landinu í árslok 1989, en
þá kom jafnframt í ljós að hluti af
þunga vatninu frá Noregi hafði verið
áframseldur til Indverja.
Sjálfir höfðu Norðmenn tekið
snemma við sér á kjarnorkusvið-
inu. Þegar árið 1946 völctu lcjarn-
eðlisfræðingar í landinu athygli
ríkisstjórnarinnar og hersins á
framtíðarmöguleikum kjarnorku í
hernaði, en nokkrir norskir eðlis-
fræðingar höfðu unnið að þróun
kjarnorkuvopna fýrir bresku stjórn-
ina í striðinu. Herseta Þjóðverja á
stríðsárunum var landsmönnum í
ferslcu minni og með því að eignast
kjarnorkusprengjur töldu sumir að
unnt væri að koma í veg fyrir inn-
rásir miklu öflugri og ljölmennari
nágrannaríkja.
Ahugi hersins var vakinn og sendi
norska ríkisstjórnin eðlisfræðinga
til Bandaríkjanna í því skyni að afla
upplýsinga um gerð þessara vopna.
Vestanhafs fengu fulltrúarnir kurt-
eislegar móttökur, enda Noregur
skilgreindur sem vinaland Banda-
ríkjanna, en þess var þó rækilega
gætt að þeir fengju ekki aðgang að
neinum mikilvægum gögnum.
Vegna náttúruauðlinda sinna
voru Norðmenn sérlega áhuga-
samir um kjarnorkutæknina. Fyrsti
kjarnakljúfurinn í tilraunaskyni var
reistur í landinu þegar árið 1951, en
fyrir þann tíma bjuggu einungis
Bandaríkjamenn, Sovétmenn, Bret-
ar og Frakkar yfir slíkri tækni. Því
var ekki að undra þótt bandaríska
leyniþjónustan fylgdist grannt með
fyrirætlunum Norðmanna.
Stjórnvöld í Washington voru lítt
hrifin af því að önnur ríki döðruðu
við kjamorkuvopnin og reyndu tals-
vert að þrýsta á félaga sína í Ósló
um að láta af slíku. Ýmsir innan
norsku stjórnarinnar vildu ekki
reita Bandaríkjamenn til reiði, en
hermálaráðherrann Jens Christian
Hauge barðist á móti og vildi elcki
útiloka hernaðarleg not Noregs af
kjarnorkutækninni. Með stofnun
NATO og inngöngu Noregs árið
1949 var öllum slíkum hugmyndum
þó varpað íyrir róða. Noregur missti
því af þeim vafasama heiðri að verða
fámennasta kjarnorkuveldið.