Fréttablaðið - 28.10.2017, Síða 56

Fréttablaðið - 28.10.2017, Síða 56
28. OKTÓBER 2017 LAUGARDAGUR Q 5 1 4 *UJ s MENNING Ánægð að það skuli vera þessi gróska í hönnun í Hafnarfirði m helgina veröa opnaö- ar tvær hönnunarsýningar en þær eiga rætur aö rekja til ólíkra heimshluta. í aöalsalnum verður opnuö sýningin Japönsk nútímahönnun 100, farandsýning með áherslu á hönnun nytjahluta **frá 2010 til 2017 en í Sverrissal sýningin Með augum Minksins - hönnun, ferli, framleiðsla. Minluir- inn er ferðavagn, íslensk hönnun og framleiðsla. Ágústa Kristófersdóttir, for- stöðumaður Hafnarborgar, segir að síðustu ár hafí að minnsta kosti ein sýning á ári í Hafnarborg verið helg- uð hönnun. „Á síðasta ári vorum við t.d. með sýningu á keramikhönnun. Síðan höfum við líka verið að horfa á borgarskipulag og þá sérstaklega umhverfishönnun í Hafnarfírði." Ágústa segir að sýningarnar eigi það sameiginlegt að hér er á ferð- inni iðnhönnun. En hvernig skyldi standa á því að þessi japanska ýýning er komin til Hafnarfjarðar? „Þetta er sýning sem var fyrst sett saman íyrir þrettán árum af Japan Foundation og endurnýjuð 2014 og er á ferð um heiminn. Þetta er mjög falleg sýning, hönnuð af japanskri arkitelttastofu og kemur alveg tilbúin til okkar." En er mikill munur á japanskri hönnun og til að mynda vestrænni? „Nei, í sjálfu sér ekki. Japanir voru náttúrulega mjög leiðandi um miðja tuttugustu öldina í allri hönnun, hátækni og fram- leiðslu. Síðan eru mjög sterk og skýr tengsl á milli Japans og Skandinavíu og eins Japans og módernismans sem er áhugavert fyrir okkur að skoða.“ ^> Ágústa segir að það sé líka mjög spennandi að skoða sýninguna í Sverrissal en hún sé ekki bara íslensk heldur úr Hafnarfirðinum. „Þegar við vorum búin að setja þessa japönsku sýningu á dagskrá Ágústa Kristófersdóttir segir að það séu skyldleikar á milli japanskrar og skandinavískrar hönnunar. MYND/MARGRÉT SEEMA TAKYAR fórum við að leita að íslenskri iðn- hönnun. Þá vörum við svo heppin að í íshúsinu í Hafnarfirði eru aðilar sem hafa verið að vinna að hönnun Minksins, þessa skemmtilega ferða- vagns, um noklturra ára skeið. Mink- urinn er kominn í prufueintaki og var á ferð um landið í sumar. Nú er hann kominn upp á pall í Hafnar- borg og við höfum með honum allar upplýsingar um þetta langa ferli sem liggur að baki. Þetta ferli sem er líka að baki hverjum einasta grip á japönsku sýningunni sem felur í sér samvinnu margra aðila, enda- laust samtal og drifkraftinn sem þarf til þess að hrinda hugmynd í framkvæmd. Gera hugmynd að veruleika, verða að grip sem er verið að fjöldaframleiða. Við erum gríðar- lega ánægð með að það skuli vera gróska sem þessi í Hafnarfirði. Það er frábært." magnus@frettabladid.is ALÞJÓÐADAGUR PSORIASIS Alþjóðadagur Psoriasis verður haldinn hátíðlega þann 31. október. í tilefni af deginum boðar Spoex til fyrirlestrarraðar og vörukynninga tengdum sjúkdómnum psoriasis. Við bjóðum alla hjartanlega velkomna að fagna með okkur alþjóðadegi psoriasis í salnum Gullteig á Grand hótei Reykjavík, Sigtúni 38,105 Reykjavík, milli kl 17:00-19:00. Þátttaka er ókeypis. Dagskrá Baldur Tumí dr. rned i húð- og kynsjúkdómum fjallar um þróun líftæknilyfja vid bólgusjúk- dómum í húð. Soha Birgitta Kraritz ^álfræðingur fjallar um hvornig þaó er aó lifa með langvinnum sjúkdórnum og áhríf þess á iífsgæói sjúkiínga. Hertha Richardt kynja- fraaðjngur fjallar um útlits- rriytur og útlitsnorm þegar kemur að húðsjúkdómurn og hvernig viðhorf tii húósjúk- dóma speglar samfélagsgerð og staðalimyndir, Hertha er sjálf rheö psoriasis sjúkdórn- inn og skoðar birtingamynd hans bæði frá fræðilegu og persónulegu sjónarhornj. Særingarmáttur sannleikans og haugalyganna Úr leiksýningunni Gud blessi ísland i Borgarleikhúsinu. mynd gri'mur bjarnason LEIKHÚS Gud blessi ísland ★ ★★★★ eftir Mikael Torfason og Þorleif Örn Arnarsson Borgarleikhúsið Leikstjórn: Þorleifur Örn Arnarsson Leikarar: Aðalheiður Halldórs- dóttir, Arnmundur Ernst Backman, Brynhildur Guðjónsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Halldór Gylfason, Hilmar Guðjónsson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Örn Árnason Leikmynd: llmur Stefánsdóttir Búningar: Sunneva Ása Weisshappel Lýsing: Björn Bergsteinn Guð- mundsson Danshöfundur: Aðalheiður Hall- dórsdóttir Tónlist: Katrin Hahner Hljóð: Baldvin Þór Magnússon Leikgervi: Sunneva Ása Weiss- happel og Elín S. Gísladóttir Myndband: Elmar Þórarinsson Haustiö 2008 varö hrun. Fjárhags- legar hamfarirnar skullu á landinu, ekki bara í öldum heldur skjálfta- flóöbylgjum. Líkt og með gróöur- húsaáhrifin þá var hrunið ekki orsakaö af hærra máttarvaldi heldur var gjörningurinn í boöi gráðuga mannfólksins með dyggum stuðn- ingi ríkisstjórnarinnar. Guö blessi ísland í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar var frumsýnt á stóra sviöi Borgarleikhússins síöastliðinn föstudag, rétt rúmri viku áður en þjóöin gengur enn og aftur til kosn- inga. Tímasetningin er lyginni líkust og leiksýninguna veröur aö sjá til aö trúa. Rannsóknarskýrsla Alþingis um hruniö sem sýningin byggir á spannar rúmlega tvö þúsund síður í níu bindum þannig aö þeir Þorleifur Örn og Mikael Torfason ráöast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, frekar en fyrri daginn. Munurinn á þessari sýningu og þeirri fyrri er aö í þetta skipti, meö örfáum undan- tekningum, hafa þeir beislað niður hamaganginn án þess aö fórna list- rænu nálguninni og kraftinum. Hér er á ferö gríðarlega metnaöarfullt leikverk þar sem löskuð sál heillar þjóöar liggur til grundvallar og leik- ararnir geta ekki annað en brotist út úr sínum hlutverkum til aö gera atburðarásina bærilega. Mest spennandi leikstjórarnir eru þeir sem bæði ögra áhorfendum og sér sjálfum, eru óhræddir viö aö taka áhættur en læra einnig af mistökum. Á sínum verstu stundum fellur Þor- leifur Örn ofan í sjálfhverfuhylinn en á þeim bestu býr hann til umhverfi þar sem áhorfendur horfa á sjálfa sig og samfélagiö á nýjan hátt. í Guö blessi ísland hefur hann tálgað til verkfærin sín og smíðað sviösum- hverfi þar sem allt getur gerst og leikarar fá aö njóta sín. Athöfninni er stýrt af sögumönn- unum Halldóru Geirharösdóttur og Halidóri Gylfasyni sem kýta stööugt um hvort glasið sé hálffullt eöa hálf- tómt. Eru breytingar mögulegar þegar við öll erum samsek á einn eöa annan hátt? Fljótlega kemur þó í ljós aö hinir raunverulegu sögumenn sýningarinnar og sjálfskipaðir varð- hundar sögunnar eru þeir kump- ánar Davíö Oddsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson, leiknir af Brynhildi Guðjónsdóttur og Krist- ínu Þóru Haraldsdóttur. Þær stela sýningunni, eins og þeir félagar ætla sér, og bera á borö stórkostlega firr- ingu í bland viö hárbeittan húmor. Karakterlistinn er langur, flókinn og uppfullur af ímynduðum fómar- lömbum hrunsins. Þyrlubrotlend- ing, ofsóknir og samsæriskenningar koma allar við sögu og allt viröist nær lyginni frekar en raunveruleik- anum. Hjörtur Jóhann Jónsson staö- festir hér aö hann er einn af allra bestu leilcurum landsins um þessar mundir og heldur áhorfendum í hendi sér á sjálfshjálparfyrirlestri öfgakapítalistans. Arnmundur Ernst Backman kemur sterkur til leiks og er til alls líldegur í framtíöinni. Hilmar Guðjónsson potast lipurlega um sviöið og rís hæst í aulaskap auð- mannsins sem vill bara aö allir vinni í lottóinu. Leikhópurinn allur vinnur ein- staklega vel saman og flæðiö á milli atriða á sér kannski langan aðdrag- anda en er áhrifaríkt að sama skapi. Hér eru eklci á ferðinni eftirhermur, frekar leikrænar túlkanir. Maríanna Clara Lúthersdóttirfergjörsamlega á kostum sem fyrrverandi forseti vor, Ólafur Ragnar Grímsson, einlægur en fjarverandi. Aöalheiöur Halidórs- dóttir, sem einnig stýrir áhrifarikum danshreyfingum, fremur stórbrot- inn náttúrugjörning eiginkonu sem sér ekki fjallgarðinn fýrir tindinum. Rúsínan í pylsuendanum er síðan Örn Árnason sem virðist í fyrstu eins og álfur út úr hól en blómstrar síðan sem aldrei fyrr. Hvað umgjörö varöar þá veröur sýning á borð viö Guö blessi ísland elcki til án toppklassa listræns teymis. Ilmur Stefánsdóttir er orðin sérfræðingur stóra sviösins þar sem allt sviðiö er undirlagt, togað og teygt. Búningar Sunnevu Ásu Weiss- happel eru stundum óþarflega prjálsamir en hér vinna þeir með sýningunni og litskrúðugu barokk- búningarnir eru með hennar bestu sköpunarverkum. Leikgervin sem hún vinnur meö Elínu S. Gísladótt- ur eru líka virkilega vel útfærð sem og ljósahönnun Björns Bergsteins Guömundssonar sem alltaf er hægt að treysta á. Tónlist Katrin Hahner rekur síðan smiðshöggið á frábæra umgjörö og þar ber helst aö nefna óöinn til þýsku bankanna sem kall- ast „Danke, Danke, Danke". Guð blessi ísland er gallhörö, grót- esk og epísk revía fyrir tuttugustu og fyrstu öldina þar sem öllu er tjaldaö til og spilaborgin sprengd í loft upp. Sýningin er líkt og helgiathöfn þar sem gamlar syndir eru særöar upp á yfirborðið í örvæntingarfúllri til- raun til að láta þær hverfa. Þegar öllu er á botninn hvolft er þjóðin enn aö berjast viö afleiöingar ára- tuga gamals uppgjörs. Nema hvaö aö uppgjörið átti sér í raun aldrei staö heldur var reistur minnisvarði því til heiöurs í formi rannsóknar- skýrslunnar sem fáir lásu, flestir vildu gleyma sem allra fyrst og leita síöan aftur að næsta góðæri. Sigríöur Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Stórbrotið listaverk sem enginn má missa af.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.