Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Síða 22
ég var búin að sjá hana. Ég sagði við
Frank: Komdu og sjáðu „Anna,
skjóttu nú,“ en það vildi hann ekki og
sagði að „Skammbysskuskotið11 væri
skárra. Þá sagði ég: Annaðhvort vil
ég sjá „Skotblossann" eða „Skamm-
byssurnar tala“ eða þá „Skammbyss-
urnar syngja“. Þá sagði hann: Hérna
er fin mynd — „Ástarsöngur skamm-
byssanna sex“ en hana hafði ég séð
á sunnudaginn var ....
Fulltrúinn: Nú, hvaða mynd sáuð
þið svo?
Bessie: Við ætluðum að sjá „Fljúg-
andi diska“ en þá var búið að skipta
um mynd, svo að við fórum á „Kjarn-
orkuárásina" og „Líkið horfna“.
Fulltrúinn: Jæja, hvað gerðuð þið
svo?
James: Hvað við gerðum svo? Þá
tókum við eftir því að við vorum
orðin alveg staurblönk. En okkur
langaði til að líta enn þá einu sinni
inn á „Safn frægra glæpamanna".
Hafið þér séð það hr. fulltrúi? Þar er
meðal annars stytta af Jim Conacker.
Sá piltur framdi 30 morð og 17 rán ..
Fulltrúinn: Nú er það ekki Jim
Conacker sem ég hef áhuga fyrir held-
ur þið ....
James: Fyrir okkur? Nú jæja, við
veltum því fyrir okkur hvernig við
gætum útvegað okkur aura.
Bessie: Ég stakk upp á því við
Frank að við skyldum taka þátt í verð-
launadanskeppni.
Fulltrúinn: Keppni um fegurstan
dans?
James: Nei, keppni í þoldansi. Þá
mundi ég eftir Billy og Vivian King.
Þau dönsuðu samfleytt í nokkur
hundruð klukkustundir — næstum í
heilan mánuð.
Bessie: Heilan mánuð, það er nokk-
uð langur tími ....
James: Og við þurftum á peningum
að halda strax en ekki eftir heilan
mánuð.
Fulltrúinn: Hvað gerðist svo?
James: Ja, það veit nú fulltrúinn.
Það sem gerðist var nákvæmlega eins
og' í kvikmyndinni „Vopnuð árás og
rán“.
Fulltrúinn: Viðurkennið þið þá —
menntaskólanemandinn Frank James
og afgreiðslustálkan Bessie Benton —
að hafa í kvöld kl. 10 myrt lyfsalann
Walter D. Philipps til fjár?
James: Já.
Bessie: Já.
★
Lengra rekjum vér ekki skýrslu
fulltrúans.
En sannleikans vegna viljum vér
geta þess, að bandaríski pilturinn
Frank James, vinkona hans, af-
greiðslustúlkan Bessie Benton og lög-
reglufulltrúinn Hartley, eru skáld-
skapur höfundar.
Allt annað — nöfnin á kvikmyndun-
um, sjónvarpsdagskrám, myndablöð-
in og hin stutta efnisskrá bandarískra
bóka og málverka —- er hér tilgreint
nákvæmlega eins og það er.
Hinn fjölbreytti matseðill andlegrar
fæðu, sem borinn er á borð hins
venjulega Bandaríkjamanns af svo
mikilli rausn, er birtur hér án þess
að hugmyndáflug höfundar auki þar
nokkru við.
H. G. þýddi.
Amerísk ómenning streymir
inn í vort kæra lanð
Ég spyr: er bát vorn að bera,
inn í brimið við alþjóðasand?
K. H.
20
VINNAN og verkalýðurinn