Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Qupperneq 26
í einum stað var settur í þær sveifarás, á öðrum stimplar o. s. frv. Brátt
voru vélarnar tilbúnar með öllu, sem þær þurftu, og fóru inn í sal, þar sem
þær voru reyndar og látnar ganga alllengi áður en þær voru settar í bílana.
í samsetningarsalnum: Við sáum þegar fyrstu stykkin vor fest á bílgrindina,
og svo hvert af öðru jafnóðum og hún þokaðist áfram. Hver hluturinn eftir
annan kom líðandi einhversstaðar að, á nákvæmlega réttum stað og stundu,
flestir ofan úr loftinu, en þarna er hátt til lofts og vítt til veggja.
Maður stóð þar tilbúinn með málningarsprautuna og úðar allan undirvagninn
með svörtu lakki, síðan rennur hann í gegnum dálítinn boga og kemur eftir
nokkrar sekundur út með hörðu og þurru lakki.
Þá kemur ofan úr loftinu, langt að, allar felgurnar með hjólbörðum hver á
eftir annarri, þar næst húsið, svo pallurinn, og síðast öll brettasamstæðan, og
eftir nokkrar mínútur er þetta orðið fast á sínum stað, og bíllinn stendur á
færibandinu að öllu leyti tilbúinn til aksturs.
Vegna þess að - verkfræðingurinn, sem leiðbeindi okkur um verksmiðjuna
vissi að ég var bílstjóri að atvinnu, komst ég ekki undan því að fara upp
í einn bílinn, þar sem hann stóð fullgerður á færibandinu, og setja han'n í
gang í fyrsta skipti og aka honum í burtu og inn á bás þar sem honum var
ætlaður staður.
Árni Guðmundsson og tveir rússneskir ungherjar.
24
VINNAN og verkalýðurinn