Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Side 63
MÁL OG MENNING: — Ný félagsbók
afið og huldar lendur
Fátt er það sem heillar menn eins og hafið, myndbreytingar þess allar,
dularkynni og fólgin auðæfi, hinn stórfenglegi heimur sem skáldið Einar
Benediktsson lýsti í kvæði sínu Utsæ.
Ameríska visindakonan Rachel L. Carson hefur unnið merkilegt afrek með
bók þeirri HAFIÐ OG HULDAR LENDUR sem hér birtist í þýðingu
Hjartar Halldórssonar.
I bók þessari er með furðulega Ijósum hætti dregin alhliða mynd af ein-
kennum hafsins, uppruna þess, þróunarsögu, lögmálum, lífi og framtíðar-
horfum.
Hún segir frá litbrigðum hafsins, hinu morandi lífi undir yfirborði þess,
hinum köldu myrku hafdjúpum, hrikalegum fjallgörðum og eyðilöndum, elds-
umbrotum undir djúpum sæ, ofsakrafti hafsins og ljúfmildri kyrrð, vindum
og fallstraumum, áhrifum tungls ,sólar og stjarna á hafflötinn, loftslagsbreyt-
ingum af völdum hafstrauma, hafinu sem uppsprettu lífsins og óþrotlegu
forðabúri, einu tilverusvæðinu niður af öðru í þess ókynnis djúpum.
Þessi bók svarar ótal spurningum um hafið, í samræmi við nýjustu rann-
sóknir, en vekur um leið fjölmargar nýjar sem ennþá er ósvarað. Hún gerir
oss hafið ennþá meira heillandi en áður, augljósara og dularfyllra í senn.
Varla munu þess dæmi að fræðibók hafi verið tekið eins vel og þessari,
hvar sem hún hefur komið út. Hún er þegar orðin heimsfræg og þýdd á mörg
tungumál. f Bandaríkjunum hefur hún verið metsölubók mánuð eftir mánuð.
Hermann Einarsson, fiskifrœðingur, ritar formála fyrir islenzku útgáfunni.
\ INNAN og verkalýðurinn
61