Bergmál - 01.11.1956, Qupperneq 7
B E R G M Á L
1 9 5 6 ------------------------
staðið auð og mannlaus, Ljósið,
sem nú var þarna inni hafði
undarleg álhrif á mig. Bjarrni
þess var bleik-fölur og lýsti þó
upp stóran hlutg svalanna og
'grasflötinn fyrir utan að
nokkru.
A-ha, ég hefi þá fengið nábúa,
hugsaði ég. Og ég skal viður-
kenna það að sú hugsun olli mér
þá nokkrum áhyggjum. Ég
læddist út úr herbergjum mín-
um og út á svalirnar, en þegar
ég kom út Ihafði ljósið verið
slökkt. Ég fór því aftur inn í
:herbergi mitt og las fram eftir
kvöldi. Yið og við fannst mér
ég heyra létt fótatak rétt hjá
mér, það var líkast því að það
kæmi út úr veggnum. Þessu
linnti ekki fyrr en ég háttaði
og sofnaði.
Um miðja nótt ihrökk ég upp
með andfælum og þóttist þess
fullviss að einhver væri að
ganga aftur á bak og áfram um
svefnhenbergi mitt, í myrkrinu.
Ég fór fram úr og kveikti ljós.
Og hvað haldið þið að ég hafi
séð?
Á miðju gólfi stóð stór köttur,
sem skaut upp kryppunni og
glápti á mig stórum, fosfórlýs-
andi augum. Þetta var fallegur
angóra-köttur síðhærður með
mikið, loðið skott. Litur hans
var mjög sérkennilegur, eigin-
lega silki-gulur. Ljósið glamp-
aði á gulum hárunum svo að
þau minntu mest á gullþræði.
Svo læddist hann letilega í
áttina til mín og strauk sér
mjúklega við fætur mína. Ég
beygði mig niður til að strjúka
hann, og lét hann sér það' vel
líka, fór brátt að mala og hopp-
aði því næst.upp á kné mér. Ég
veitti því nú athygli að þetta
var mjög ung læða, spenarnir
voru svo smáir að vart mátti
greina þá fyrir kviðarhárunum.
Hún virtist sólgin í að láta
kjassa sig og strjúka endalaust.
Að lokum lét ég ihana á gólfið
og reyndi að reka hana út úr
herberginu, en hún vildi ekki
fara og hnipraði sig saman undir
húsgögnunum. En jafnskjótt og
ég hafði slökkt ljósið hoppaði
hún upp í rúmið til mín. Seint
og um síðir tókst mér þó að
sofna. Um morguninn þegar ég
vaknaði sást kisa hvergi í her-
berginu.
Mannsheilinn er óneitanlega
undursamlegt verkfæri, sem
auðvelt er að setja úr lagi.
Hugsið ykkur þessar stað-
reyndir, sem ég hefi þegar lýst.
Ég sé ljós loga í íbúð sem verið
5