Bergmál - 01.11.1956, Blaðsíða 10

Bergmál - 01.11.1956, Blaðsíða 10
Október — Nóvember B E R G M Á L------------------- hliðar og gekk inn að rúminu og beygði mig niður að ihöfði hennar, sem var hálf-hulið í koddanum. Ég var miður mín af blygðun og afsakaði mig í ákafa, og viðurkenndi að ég ihefði kom- ið illa frarn og engan veginn eins og nábúa 'hæfði, og ég bað hana að slá mig utan undir og reka mig því næst á dyr — en fyrst yrði hún að fyrirgefa mér. Lengi talaði ég á þessa leið án árangurs. Að lokum leit hún þó upp og horfðist ég í augu við unga, glaðlega og afburða fagra konu, sem brosti við mér .... Hún muldraði eitthvað í barm sér, sem ég ekki skildi .... „Það eruð þér“ .... sagði hún .... „Það eruð þér .. . . “ Ábreiðan, sem hún hafði sveipað um sig hafði sigið dá- lítið niður af herðum hennar svo að ég sá hin fersku ung- meyjarbrjóst hennar, sem freist- uðu til kossa .... Ég starði á hana, orðvana og hrærður og 'hugsaði upp aftur og aftur: Hvar hefi ég séð þetta andlit, þessi augu, þessar hreyfingar? En smátt og smátt varð freist- ingin forvitninni yfirsterkari. Ég reyndi að taka utan um hina ókunnu ungmey og faðma hana að mér, en hún smaug úr greip- um mér, með slíkum léttleika og fimi, að jafnvel fjölleikahúss- maður 'hefði mátt vera stoltur af, hún stökk þvert yfir gólfið og slökkti ljósið. Svo kom. hún aft- ur að rúminu og í þetta skipti var það hún, sem þrýsti höfði mínu að brjósti sér og sýndi mér mikil atlot ....“ Einhver áheyrenda muldraði: „Er ekki óhætt að sleppa þessu, Tribourdeaux?“ „Verið alls óhrædd,“ hélt læknirinn áfram, „ég segi aðeins frá því nauðsynlegasta. Ég yfir- gaf hana klukkan fjögur um nóttina, og fór sömu leið og ég hafði komið um kvöldið — út um gluggann og eftir svölunum. Ég var að vísu töfrum sleginn, en jafnframt var ég órólegur. Þessi fagra, léttúðuga kona, sem sagði — „Það, eruð þér“ •— eins og hún hefði þekkt mig lengi, sem var svo fátöluð og svaraði treglega spurningum mínum •— hún hafði sagt mér nafn sitt •— hún hét Linda, en það var líka allt og sumt, sem ég fékk að vita um ihana. Ég, gat ekki hrundið úr ihuga mér hinum grænu augum, sem tindruðu í myrkrinu, eða þykku hárinu sem gneistaði af rafmagni er ég strauk yfir það. Vart var ég 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bergmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.