Bergmál - 01.11.1956, Síða 11

Bergmál - 01.11.1956, Síða 11
1956 B E R G M Á I. lagstur fyrir er ég fann einhver þyngsli á fótum mér. Það var gullkötturinn. Ég reyndi að reka hann á brott, en hann kom alltaf til 'baka. Að lokum gafst ég upp og svaf með þennan kynlega félaga til fóta í rúmi mínu, eins.og undanfarnar næt- ur. Ég svaf illa og vaknaði í martröð. Hafið þið nokkurn tíma verið rígbundin við einhverja þráláta hugsun, einhverja öfgafulla vit- leysu, sem skynsemin og viljinn reyna að hrinda frá sér, án árangurs? Þannig var ástatt fyrir mér næstu dagana. Ekkert nýtt gerð- ist. Heldur endurtók þetta sama sig kvöld eftir kvööld, að því undanskildu að ég kom nú ekki hinni fögru grannkonu minni á óvart. Ég fór venjulegast frá Lindu laust eftir miðnætti. Og vart hafði ég lagst upp í rúm mitt fyrr en gullkötturinn kom uppí til mín, hreiðraði um sig og svaf hjá mér fram í dögun. Ég vissi nú hver átti köttinn. Þegar ég minntist eitt sinn á hann við Lindu, sagði hún: -— „Já, ég á hana .... já, þegar maður íhorfir á hana, gæti mað- ur ímyndað sér að hún væri úr gulli?“ „Nei, það gerðist, sem sagt, ekkert nýtt, og þó varð ég stöð- ugt háðari hinum óljósa kvíða. Þessi ásækna og þráláta hugs- un, sem ég nefndi áðan varð sterkari og sterkari. í fyrstu hafði þetta aðeins verið örlítill dökkur blettur í sálarfylgsnum mínum, en nú var þetta orðinn stór skuggi eins og meinsemd á sálinni, sem ekki varð fram hj á komizt .... “ „Þetta er ósköp einfalt," sagði unga stúlkan, sem beðið hafði lækninn að segja söguna. „Linda og gullkötturinn voru eitt og hið sama..“ Tribourdeaux hló. „Ég vogaði mér ekki þá, að taka svo ákveðna afstöðu, eins og þér gerið nú. En ég get ekki neitað því, að þessi óhugnanlega hugsun ásótti mig og kvaldi nótt eftir nótt er ég lá andvaka í rúmi mínu. Já, öðru hverju var ég sannfærður um að þessar tvær verur með grænu augun og gullna litinn og mjúku hreyf- ingarnar væru ein og sama sálin í tveim mismunandi gerfum. Takið eftir því, að ég sá þær aldrei samtímis Lindu og kisu, enda þótt ég bæði Lindu um 9

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.