Bergmál - 01.11.1956, Síða 12

Bergmál - 01.11.1956, Síða 12
Október — Nóvember Bercmál ---------------------- það og reyndi jafnframt að koma hénni á óvart. Ég reyndi að tala um fyrir sjálfum mér og sannfæra sjálf- an mig um, að ekkert dularfullt eða yfirnáttúrlegt væri við það sem fyrir mig hafði komið. Ég gerði grín að sjálfum mér fyrir að óttast unga konu ög vingj arn- legt dýr .... Og þó fann ég það, á meðan ég beitti fortölum við sjálfan mig, að ég var í raun og veru hvorki hræddur við kon- una né kisu, heldur aðeins við hugsunina, ímyndunina um eina sál í tveim verum. Ekkert verra er til en að hræðast sína eigin hugsun. Ég þjáðist svo mjög, að stapp- aði. nærri geðbilun. Og svo fór loks að mótast í 'huga mér ný hugsun. Þessi unga kona batt mig með töfrum sínum. En ég ákvað að drepa dýrið. Kvöld eitt tók ég glycerin út úr meðalaskáp mínum, dálítinn glerstaut og auk þess glas með cyankalíum, áður en ég fór inn til Lindu. í þetta skipti voru ástaratlot mín ákafari en oftast áður, faðmlög mín fastari og innilegri .... Þegar ég kom svo aftur inn í herbergi mitt kom gullkötturinn, eins og vant var, á móti mér. Ég kjassaði hana og lokkaði svo að hún skaut upp kryppu og malaði ánægjulega. Svo dýfði ég glerstautnum í glycerínið og kisa sleikti hann með áfergju. Þrisvar sinnum endurtók ég þetta sama, en í fjórða skiptið vætti ég gler- stautinn í cyankalíum, sem kisa sleikti einnig í góðri trú. Skyndilega varð hún stíf og stóð sem líkneski á gólfinu. Jafnskjótt fékk hún hræðilegan krampa, hún valt þrisvar um hrygg á gólfinu, og rak upp ang- istarvein — mannlegt angistar- vein. —- Hún var dauð. Ég þurfti á öllum mínum kjarki að halda til að geta fjar- lægt hinn dauða kött, að lokum tók ég hann upp af gólfinu með titrandi höndum og hentist út úr húsinu. Ég hljóp við fót alla leið niður að fljótinu Loire og þar losaði ég mig við byrði mína. Ég ráfaði aftur á bak og áfram um borgina fram í dögun. En þegar fór að birta af degi, ákvað ég að halda heimleiðis. Þegar ég kom að dyrunum á herbergjum mínum varð ég gripinn óstjórn- legri hræðslu, — hræðslu við það, að ef til vill myndi ég finna fórnardýr mitt í fullu fjöri inni í herbergi mínu, — afturgengið. 10

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.