Bergmál - 01.11.1956, Page 14
Kona, sem hefir lag á því að gerast karlmanni
ómissandi í sjálfsdýrkun hans, ávinnur sér ást hans
og virðingu áður en langt um líður.
AMBÁTTIN THAIS
Sfi((a eftir flr. fohn Mjöen.
Þegar Alexander mikli ihafði
gjörsigrað her Persa í orustunni
við Issos árið 333 fyrir Krists
burð varð hann að hinkra við
um stund áður en hann héldi
lengra austur á bóginn. Hann
varð að ná völdunum í strand-
héruðunum, Fönikíu, Palestínu
og Egyptalandi, sem voru á
valdi Persakonungs, til þess að
eiga það ekki á hættu að fá
óvinaher aftan að sér. Honum
veittist auðvelt að ná völdum
á allri þessari strandlengju
nema í borginni Tyrus, sem var
staðsett á eyju og var talin
óvinnandi. En eftir að Alex-
ander hafði látið byggja
bryggju alla leið út í eyjuna
tókst honum loks að sigra borg-
ina eftir margra mánaða erfiða
umsát.
Enda þótt Alexander væri að
jafnaði mildur og réttsýnn að
unnum sigri, hafði hin langvar-
andi seigla og þrotlausa elja
borgarbúa tekið mjög á taugar
hans og gert hann grimman í
þetta skipti. Þeir af íbúum
borgarinnar, sem ekki höfðu
fallið í orustunum — taldir um
30.000 — voru gerðir að þrælum
og ýmist seldir mansali til
Hellas eða Egyptalands, en all-
stór hópur þó rekinn austur á
bóginn yfir Litlu-Asíu.
Dag nokkurn tveim árum síð-
ar sat Alexander á grasflötinni
framan við konungshöllina í
Babylon og hprfði á leifarnar af
þrælarekstrinum frá Tyrus, er
hópurinn var rekinn gegnum
borgina. Það var hryggileg sjón.
Menn og konur á öllum aldri
12