Bergmál - 01.11.1956, Page 15

Bergmál - 01.11.1956, Page 15
1956 Bergmál dröttuðust áfram hálfbogin, tötrum klædd, ó'hrein og illa til reika á hinni vonleysislegu göngu. En í miðjum hópi jpessara hryggilegu mannvera kom Al- exander auga á unga stúlku, sem alls ekki virtist að neinu leyti kúguð eins og hitt fólkið. Þótt hún væri lörfum klædd, rykug og óhrein eins og aðrir í hópnum, gekk hún hnakkakert og bein í baki. Hún hnykkti til höfðinu, svo hrafnsvart hár hennar þyrlaðist til, og þegar hún kom auga á kónginn kink- aði hún kolli til ihans eins og hann væri gamall kunningi hennar. Fegurð ungu stúlkunnar leyndi sér ekki þrátt fyrir larf- ana. Framkoma hennar mátti og kallast ögrandi. Það var eins- dæmi að ambátt skyldi leyfa sér að kinka kolli til sjálfs „herra heimsins“ eins og hún væri jafningi hans. Allt vakti þetta því nokkra athygli ein- ræðisherrans, sem aldrei hafði átt slíku að venjast. Og hvað var nú þetta? Rak ekki þessi freka stelpa út úr sér tunguna í áttina til hans, er hann skeytti því engu þótt hún kinkaði kolli? Jú, svo sannarlega og svo hnykkti hún til höfðinu enn á ný og glotti. Alexander varð ösku-reiður, lét sækja stelpuna út úr hópn- um og leiða hana fyrir sig. „Náið í túlk,“ skipaði kunung- urinn. „Óþarft,“ sagði hin ófeimna ■ stúlka. „Ég tala grísku betur en þú.“ „Hvaðan ert þú?“ „Síðast átti ég heima í Tyrus, þar sem böðlar þínir tóku mig til fanga. En ég hefi dvalizt í Aþenu um fjögra ára skeið.“ „Hvað heitir þú?“ ' „Thais.“ „Hvernig vogar þú þér að korna þannig fram við mig, kónginn?“ „Ja, sei, sei, þú ert víst ekki svo hættulegur.“ „Ekki hættulegur? Veiztu það að ég get látið húðstrýkja þig og reka þig því næst aftur til þrælanna?11 „Já, víst gætir þú það, en svo heimskur ertu nú ekki.“ „Heimskur? Er það kannske heimskulegt að refsa hortugri stelpuskjátu?“ „Já, það er heimskulegt, vegna þess að þú þarfnast mín.“ „Þarfnast ég þín?“ Konungur gat ekki stillt sig um að hlæja, 13

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.