Bergmál - 01.11.1956, Side 16

Bergmál - 01.11.1956, Side 16
Október — Nóvember Bergmál ---------------------- þótt reiður væri. „Ég, sem á þúsundir ambátta. Heldur þú áð þú sért svo falleg?“ „O-jæja, ekki ólagleg. En það er ekki þess vegna. Ég er vitur, á einstaka sviði vitrari en þú.“ „Svo-o ....“ Konungur lýtur höfði og virðist hugsi. Þótt hann væri vanur að umgangast ambáttir og hlusta á smjaður úr öllum áttum, þá var þessi stolta og djarfa kona nýtt fyrir- brigði. Dirfska hennar var undraverð, því varð ekki neit- að, og það var eitthvað sérstætt við þetta fullkomna óttaleysi, sem nálgaðist fífldirfsku, eitt- hvað sem snart hinn djarfa og 'iherskáa mann. Fögur var hún einnig og hann fann að hún var óheimsk. Hann leit upp á ný. „Hvað áttir iþú við með því, að á einstaka sviði værir þú vitrari en ég?“ „Það skal ég víst segja þér, en ég er bæði soltin og þyrst. Ég þarfnast bæði matar og drykkjar, en auk þess þyrfti ég að fá heitt bað og annan fatnað.“ „Einmitt það.“ Nú hló kóngur og sló í málm- klukku, sem stóð á borði við hlið hans. Þjónn kom sam- stundis og beygði sig til jarðar í lotningu. Konungur ávarpaði hann svo: „Farðu með þessa stúlku og skipaðu böðlinum að hálshöggva hana.“ Þjónninn rétti úr sér, gekk til Thais og tók um handlegg hennar. „Jæja þá,“ sagði kóngur. „Hvað segir þú nú?“ Thais stendur grafkyrr, jafn- áhyggjulaus sem fyrr. „Hvað ég segi? Hvað ætti ég svo sem að hafa að segja um heimskupör þín?“ Brosið hvarf af andliti kon- ungs. Hann gaf þjóninum bend- ingu um að hann mætti fara. „Þú hefir vafalaust skilið það að ég ætlaði að hræða þig.“ „Þú getur ekki hrætt mig.“ „Get ég ekki ihrætt þig?“ Kóngur hló á ný. „Nei, ég þekki þig mjög vel. Ég er yfirleitt mjög góður mann- þekkjari, og það er meira en hægt er að segja um þig. Þú ert enginn harðstjóri, enda þótt þú getir að vísu reiðst illilega, eins og til dæmis við Tyrus en djarfir og hraustir menn eins og þú, eru aldrei hrakmenni á þann hátt sem ragmenni eru jafnan. Ég get gjarnan bætt því við að ég veit að þú munir gefa 14

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.