Bergmál - 01.11.1956, Side 17
1 9 5 6 -----------------------
þrælunum frá Tyrus frelsi. Þú
veizt vel að þeir hafa ekkert til
saka unnið annað en verja sína
eigin borg, og slíkt er bæði rétt
og heiðarlegt. Hið stóra í fari
þínu er það, að þú leggur sjálfan
þig jafnan í mestu hættrma í
orustum, en gagnvart sigruðum
óvinum ert þú jafnan mildur og
réttsýnn. Hefndin á Tyrus-búum
er þér ekki samboðin. Það veizt
þú vel sjálfur. En ég er soltin
og þyrst og þarfnast þess að fá
heitt bað og annan fatnað jafn-
skjótt og ég hefi fengið eitthvað
að borða.“
Konungur var enn á ný orð-
inn þungt hugsi og sló aftur á
málmbjölluna eins og annars
hugar. Þjónninn kom og beygði
sig til jarðar. Konungur ávarp-
aði hann svo:
„Earðu með þessa konu til
brytans. Látið hana fáriieitt bað,
ný og falleg föt, mat og vín, svo
vænti ég hennar aftur hingað
að klukkustund liðinni.“
Thais kinkaði kolli og fylgdist
með þjóninum út.
Alexander sat einn eftir,
studdi hönd undir kinn og virt-
ist áhyggjufullur. Orð ungu
stúlkunnar höfðu hitt snöggan
blett, því að innst í hugskoti
hans leyndist sú hugsun, að
---------------- Bergmál
hún hefði haft rétt fyrir sér.
Hann var herkonungur, hetja,
mikill sigurvegari, en hann var
enginn harðstjóri heldur mjög
réttsýnn maður —er hann hugs-
aði sig um, þá blygðaðist hann
sín í raun og veru fyrir það hve
mjög hann hafði látið gremjuna
ná tökum á sér við Tyrus.
Skyndilega tók hann viðbragð
og sló á bjölluna.
„Segið yfirmanni þrælarekst-
ursins, að stöðva hópinn þegar
í stað og veita öllum mannsæm-
andi aðhlynningu.“
Enn á ný varð konungur
þungt hugsi. Hvað hafði hún átt
við með því, er hún sagðist
vera vitrari en hann á einstaka
sviði? Hann, drottnari heimsins.
Það var þó ekki eintóm staðleysa,
eitthvað lá að baki þeim orðum,
því að það leyndi sér ekki, að
hún var engin venjuleg ambátt.
Þegar Thais kom aftur inn til
Alexanders, sem beið hennar
óþolinmóður, Ijómaði af henni
allri. Hún var nú klædd /hvítri,
grískri kvenskikkju, sem var
ísaumuð gulli, en auk þess bar
hún gullhring yfir hinum hrafn-
svörtu lokkum. En hún var
15 —