Bergmál - 01.11.1956, Side 20

Bergmál - 01.11.1956, Side 20
Október — Nóvember B E R G M Á L----------------- hafði meira vald yfir 'honum en nokkur annar. Mannkynssagan hefir viljað eigna henni margt illt, sem hún bar enga ábyrgð á. Henni hefir til dæmis verið kennt um það, að Alexander lét brenna konungsborgina Persopolis kvöld eitt er hann var drukkinn. Margt fleira ófag- urt hefir henni verið kennt um. En hún átti marga óvini sem gjarnan vildu ryðja henni úr vegi. Og hvað sem jþví líður, gaf hún Alexander mörg góð ráð, því hún var óneitanlega mikill mannþekkjari. Á hinum fjcá- mörgu ferðum sínum til Egypta- lands, meðal annars á meðan ‘hann var að skipuleggja borgina Alexandríu, hafði kóngur Thais alltaf með sér. Þar hitti hún yfirherforingja Egyptalands, Ptolemeus Lagus, sem var afburða daglegur mað- ur, er hafði unnið sig upp úr stöðu óbreytts hermanns í her Alexanders og var nú orðinn yfirherforingi í þjónustu hans. Þau tvö, Ptolemeus og Thais gerðust brátt bandamenn, er hvort um sig fann að hitt var sterkt, og unnu þau margt sam- an, sem reyndist báðum til gagns. Þegar Alexander dó, árið 323, hugðist Ptolemeus þegar taka völdin í Egyptalandi, en Thais brá sér í heimsókn til hans og ráðlagði honum að bíða á með- an aðrir herforingjar Alexand- ers berðust um völd og embætti. Ptolomeus fylgdi þessu ráði út í æsar, o.g hann gerði meira en það. Hann giftist hinni fögru og gáfuðu vinkonu sinni, Thais. Á þann hátt varð ambáttin Thais ættmóðir Ptolomeus-kon- ungsættarinnar, sem réð ríkj- um í Egyptalandi um þrjú hundruð ára skeið. Til þess að ná sem traustustum tökum á landslýðnum, tóku Ptolomearn- ir upp venjur Faraóanna. En þar sem Faraó var guðaættar, var hann alltof ættgöfugur til að geta gifzt öðrum konum en þeim er voru sömu ættar. Á þann hátt skapaðist sú venja að ættfólkið giftist innbyrðis, systkini giftust 'hvort öðru, já — meira að segja móðir syni, og faðir dóttur. Samkvæmt viður- kenndum líffræðilegum lögmál- um. hefði þessi frændmenna gifting óhjákvæmilega átt að leiða til úrkynjunar. Og þess vegna verður það að teljast mjög kynlegt að einn síðasti kvistur þesSa ættstofns, var Kleópatra, sem tók öðrum kon- 18

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.