Bergmál - 01.11.1956, Síða 23
B E R G M Á L
1 9 56 ------------------------
kúpumerki yfir krosslögðum
beinum. Það hafði nú ekki alltaf
verið sem verst að vera í stríð-
inu. Hann haíði til dæmis kálað
íþessum þarna Þjóðverja án þess
að hafa meiri áhyggjur af því
en það hefði verið kanínu-
ræksni, sem hann hefði nappað.
Hann sneri 'höfðinu til þess að
geta spýtt. Það hafði drepizt í
sígarettunni og hann stakk
hendinni í vasann til þess að
leita að eldspítum. En í staðinn
dró hann upp úr vasa sínum dá-
litla hönk af koparvír. Hann
-starði góða stund á þessa vír-
hönk. Jú, nú mundi hann það.
Hann hafði fundið hana utan
við braggann og hugsað með
sér að svona vír gæti orðið til
margs gagnlegur.
Hann þrýsti nefinu út að
rúðunni og rýndi út. Nú var
farið að styttast heim, það sá
'hann þótt dimmt væri að verða.
Á bekknum gegnt honum sat
feit kona, rauð og þrútin í and-
liti. Hún stundi og fór að tína
saman bögglana sína. Allir aðrir
í klefanum voru honum ókunnir,
en þessa gömlu herfu þekkti
hann. Það var konan hans Jóa
Patchett. Hún átti hænsnabú
norðan í Highlow ásnum,. aðeins
um hálfa mílu frá þorpinu hans.
Leiðinleg norn. Fleiri en ein af
unghænunum hennar höfðu á
einhvern dularfullan hátt lent
í pottinum hjá Elizu.
Hann sat grafkyrr og brosti
að gömlum minningum. En
snögglega tók hann viðbragð og
stóð á fætur. Lausnin á gjafa-
vandamálinu ihafði skyndilega
birzt honum eins og elding.
Hann tróð vírhönkinni kyrfi-
lega í vasa sinn aftur og seildist
eftir töskunni sinni uppi í net-
inu.
Lestin nam staðar. Þétta var
Little Fenton, stöð frú Patohett.
Næsta stöð, í hálfs annars kíló-
meters fjarlægð, var stöðin hans.
Brátt þrammaði hann upp
eftir dimmum, mannlausum
vegi og svalg kvöldloftið með
áfergju. Hann raulaði lag fyrir
munni sér, á göngunni. Honum
varð hugsað til leiðinlega olíu-
þefsins á Ítalíu og hvítu, rykugu
veganna þar — martröð um-
ferðarinnar, er hernaðartæki,
jeppar og skriðdrekar þutu í
allar áttir, eins og þeim væri
stjórnað af bandvitlausum
mönnum. Og alls staðar komu
bændurnir á móti manni með
framréttar hendur og biðjandi
um eitthvað, bara eitthvað.
Einni stelpu hafði hann kynnzt
21