Bergmál - 01.11.1956, Qupperneq 26
Október — Nóvember
B E R G M Á L-------------------
hann, ýtti Elizu af hnjám sér og
stóð á fætur. Með alvörusvip
hins ósvikna sjónhverfinga-
manns dró hann eitthvað fram
undan frakkalafinu — það var
dauð kanína. Aftur stakk hann
hendinni undir frakkalafið og
önnur dauð kanína kom í ljós.
„Ein handa Maju litlu,“ sagði
hann, „og önnur handa Tomma
litla,“ og svo lagði hann háðar
kanínurnar á horðið fyrir fram-
an þau. Þessu næst brá hann á
loft stórum, feitum fasan-hana
og sneri honum svo að glampaði
á hann eins og kopar í ljós-
bjarmanum, „Og ein gjöf handa
mömmu,“ sagði hann að lokum
og lagði fasan-hanann á borðið
hjá kanínunum. Hann horfði frá
einu til annars, með sigur-
glampa í augum.
Það ríkti dauðaþögn í eldhús-
inu. Fyrstur til að rjúfa þögn-
ina varð Tommy litli. Augu
hans flóðu í tárum. Hann
snökkti svolítið og stamaði:
„Þetta, engar gjafir,“ og benti
um leið á dýrin á borðinu. Maja
litla saug fingur sína og starði
á pabba sinn, eins og væri hann
framandi og ógeðfelldur maður.
Seth hafði eitt sinn setið á
bekk ákærðra í réttarsalnum,
sakaður um að hafa stolið hatt-
garmi af fuglahræðu. Nú varð
hann gripinn sömu kennd. Hann
var enn hafður fyrir rangri
sök. Það var þó augljóst að tvær
gómsætar kanínur og girpilegur
fasan voru margfallt meira virði
en hestburður af glysi því sem
þeir vildu prakka inn á mann
í Róm. Nei, ónei, það var ekki
á allra færi að botna í hugsana-
gangi barna. Hann sneri sér að
Elizu og skein óumræðileg dep-
urð úr augum hans.
Bros hennar var órætt og' af-
sakandi. Hún kleip eins og ann-
ars hugar í brjóstið á fasan-
Ihananum. Hann leit undan og
fór að hneppa að sér frakkann
án þess að segja eitt einasta orð.
Þá það —.
í þessari andrá tók Tommy
litli loks eftir töskunni, sem
lá framan við arininn. Ný von
kviknaði í brjósti hans, og réð-
ist hann á töskuna þegar í stað
með sigurópi. „Hann er bara að
gera grín, mamma,“ hrópaði
hann. Hann togaði í ólina og
kallaði á systur sína. Hún varð
að koma og hjálpa til.
Seth stóð yfir þeim hryggur
á svip. Ef til vill mundu þau
hafa gaman af þýzku hermanns-
húfunni, hugsaði hann. Tommy
myndi geta sprangað með hana
24