Bergmál - 01.11.1956, Blaðsíða 28
UPPTININGUR
Stundum finnst okkur heil blaða-
grein eða ræða nokkurs virði aðeins
vegna þess að þar kemur fyrir smá-
grein eða jafnvel aðeins ein setning,
sem stendur upp úr flatneskjunni, er
vel orðuð eða felur í sér viss sannindi,
nokkurs konar spakmæli eða þá jafn-
vel mjög snjöll fyndni. Hér fara á
eftir nokkrar slíkar setningar, flestar
úr ræðum þekktra erlendra rithöf-
unda:
★
Börn læra sannarlega nógu fljótt að
tala, en mörg þeirra, jafnvel þótt þau
lifi langa ævi, læra aldrei að þegja.
★
Það er ekki margt að sjá eða skoða
í litlu þorpi, en það sem þú heyrir
þar bætir hitt upp, fullkomlega.
★
Nýjir vendir sópa bezt, en þeir
gömlu þekkja hornin.
★
Þann dag, sem þú hlærð í fyrsta
skipti að sjálfum þér, ertu farinn að
þroskast.
★
Getir þú ekki gert sjálfan þig
þannig, sem þú vildir helzt vera —
hvernig getur þú þá búizt við því að
allir aðrir séu, eins og þú vilt að þeir
séu?
★
Ósköp er allt fólk skrítið, ja —
nema náttúrlega þú og ég. — Og þó
skal ég viðurkenna það að þú ert
stundum svolítið skrítinn líka.
★
Stundvísi er kurteisi þjóðhöfðingja,
skvlda heldri manna og nauðsyn öll-
um verzlunarmönnum.
Örlítil vanræksla getur oft valdið
stórtjóni .... Skeifan tapaðist vegna
þess að smiðurinn hafði vanrækt að
reka, einn nagla ...hesturinn fórst
vegna þess að skeifuna vantaði ....
og riddarinn féll vegna þess að hest-
inn vantaði.
★
Ef koma þarf mörgu í framkvæmd,
er öruggasta leiðin til að það megi
takast, sú, að gera aðeins eitt af því
.... en það þarf að gerast strax.
26