Bergmál - 01.11.1956, Page 31

Bergmál - 01.11.1956, Page 31
1956 B E R G M Á L það var eina veika tækifærið, sem henni myndi bjóðast til þess að komast undan. Hún greip tækifærið og heppnin var með henni. Hún var komin fram á ganginn og hafði lokað hurð- inni á eftir sér er Lester kom aftur út úr herberginu. Nú var hann orðinn viss um að þetta stefnumót sem honum hafði verið sett þarna um mið- nættið væri gildra. Myra vissi það að hún var í mikilli hættu, hún hraðaði sér niður eftir ganginum. í sömu andrá beygði Lester sig niður inni í herberginu, framan við dyrnar á skápnum, en þar sá hann liggja við fætur sínar vasaklút. Hann fann það á ilmvatninu, sem þessi vasaklút- ur var vættur í að hann kann- aðist við það og stafurinn M í einu horni vasaklútsins stað- festi grun hans. „Myra,“ sagði hann ihálfhátt við sjálfan sig, og nokkuð undr- andi. Á sama andartaki þóttist Ihann heyra dauft fótatak úti á ganginum. Á augnabliki hafði hann þotið út úr herberginu, en Myra hafði fengið dálítið for- skot sem var henni dýrmætt. Brátt var hann kominn út úr húsinu og hóf eftirförina, en þá varð honum litið. á bíl sinn og virtist hann þá breyta um skoð- un. Að vísu sneri bíllinn öfugt og hann vissi það að hann myndi glata dýrmætum tíma meðan hann væri að snúa bílnum við. Hann ákvað þó að veita henni eftirför í bílnum. Þetta var fremur fáfarið íbúðarhverfi og það sást enginn maður úti við. Myra stóð á öndinni af mæði, en hraðaði sér áfram eftir því sem hún gat og vonaði að ein- hver, sama hver væri, kæmi út á götuna og gæti orðið henni tii bjargar. Lester ók hægt og not- aði kastljós til þess að lýsa upp alla dyraskansa báðum megin við götuna. Hún faldi sig nú á bak við steinsúlu, sem hún kom að og sá það að ljósgeislarnir frá bílnum færðust nær og nær. Að lítilli stundu liðinni var bíllinn kominn fram hjá stein- súlunni og Lester hafði ekki séð hana. Hún var sloppin. Þegar bíllinn var kominn um fimmtíu metra niður eftir göt- unni fór hún að hlaupa í öfuga átt við það sem hún hafði gert, en þar skjátlaðist henni mjög, því að hvíti höfuðklúturinn, sem hún hafði vafið um höfuð sér fór ekki fram hjá Lester er hann leit í spegilinn utan á bíln- 29

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.