Bergmál - 01.11.1956, Page 33

Bergmál - 01.11.1956, Page 33
1956 B E R G M Á L veggnum, því að hraði bílsins var orðinn ofsalegur og jókst með hverri sekúndu. Konan sem Myra 'hafði séð og áleit að væri Irene, gekk mjög hratt og uggði ekki að sér. Um seinan heyrði Irene hvin bílsins og leit við. Það öskraði í hemlunum og því næst heyrðist skellur, — brak og skarkali. Myra reikaði eins og í leiðslu á slysstaðinn, en þar var nú allt hljótt og kyrrt. Fólk var farið að þyrpast að úr næstu húsum. Tveir karlmenn gægðust inn í þetta hrúgald, sem verið hafði bíll. „Snertið ekkert, frú,“ sagði annar þeirra, „og ég ræð yður einnig frá því að líta þarna inn. Það eru tvö lík sundurtætt. Hryllileg sjón.“ Myra kinkaði kolli með sam- anbitnum vörum og gekk á brott. Framundan, stutt frá, var \ fjörðurinn. Hafgolan kældi and- lit hennar. Hún gekk niður í fjöru, leysti hvíta klútinn af höfði sér, hægt og gætilega, eins og annars hugar, og horfði á eftir honum á meðan hann rak frá landi út í náttmyrkrið. Endir. í barnaskóla einum í Reykjavík sagði Gunnar litli kennaranum frá því einn morguninn að systir hans væri veik, og spurði kennarinn þá hvað væri að henni. „Læknirinn segir víst að hún sé með mislinga," svaraði Gunnar. — Kennarinn sagði Gunnari litla þá að hann yrði að fara heim, því að þessi sjúkdómur væri svo smitandi. Gunnar litli tók því mjög vel og flýtti sér á þrott með bækurnar sínar. Stuttu eftir að Gunnar var farinn reis sessunautur Gunnars litla upp úr sæti sínu. „Hvað er það, vinur minn?“ spirrði kennarinn. „Ja, — mér finnst rétt að segja kennaranum frá því að systir Gunn- ars litla á heima á Akureyri." ★ „Ég hitti mann í gær, sem fullyrti að hann hefði aldrei á ævinni keypt dagblað." „A-ha, það mætti segja mér að það væri náunginn, sem situr við hliðina á mér í strætisvagninum á morgnana." ★ Hinn myndarlegi borðherra sneri sér að borðdömu sinni, sem talaði mjög mikið. „Þegar ég sé bros yðar, ungfrú, þá finnst mér að við verðum að hittast aftur áður en langt um líður." „Hí-hí, þér kunnið sannarlega að slá gullhamra,“ sagði daman. „Aldrei hefi ég fengið orð fyrir það, en ég þyki góður tannlæknir." ★ 31

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.