Bergmál - 01.11.1956, Síða 34

Bergmál - 01.11.1956, Síða 34
Sfign eftir Sveen: ÞANNIG ER LÍFIÐ Frú Beate Tanberg á ihöfuð- bólinu Salesholm sat í björtu setustofunni sinni og lét fara vel um sig. Það var haust. Loftið var mettað af þungum rósailmi og angan eplatrjánna og barst inn um opinn franska gluggann á stafninum. Frú Tanberg sat og las í bók eftir ihádegisverðinn eins og hún var vön. Hún vildi ekki sofa. Það hafði aldrei góð áhrif á hana að sofna á þessum tíma dags. Og lífið hafði kennt henni að maður á að láta sér líða svo vel sem föng eru á. Við og við rétti hún út höndina og náði sér í konfektmola úr skál á borðinu. Hún var mikill sælkeri og viðurkenndi það fúslega. Hún viðurkenndi það líka hik- laust að hún væri orðin all- feitlagin, og hafði engar áhyggj- ur af því. „Jörgen elskar mig einmitt eins og ég er og vill hafa mig svona,“ sagði hún þegar mein- fýsnar vinkonur höfðu orð á því við hana, að hún þyrfti að grenna sig svolítið. „Ég er að verða sextug og hefi lifað mitt fegursta. Ég vil láta mér líða vel.“ Nú mátti hún víst spillast af eftirlæti, ef verða vildi. Þegar ihún heyrði að bíll beygði af þjóðveginum upp að húsinu, andvarpaði hún og hugsaði: „Oh .... gestir!“ En er henni varð Ijóst hvað hún hafði raunverulega hugsað, breytti hún strax um og sagði stranglega við sjálfa sig: „Beate, nú er eigingirni þín sannarlega orðin full-mikil.“ Svo gekk hún fram í anddyrið til þess að sjá hvem hefði borið að garði. Það var Terje! Yngsti strákur- inn hennar. Hann var aleinn. Margrét var ekki með honum. „Hvað hefir hann nú verið að óþægðast," hugsaði hún. 32

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.