Bergmál - 01.11.1956, Side 35

Bergmál - 01.11.1956, Side 35
1956 B E R G M Á L „Komdu hérna út úr bílnum og út í sólskinið, svo að ég geti séð iþig,“ sagði hún og faðmaði son sinn að sér. Þegar þau voru komin inn í stofuna horfði hún lengi rannsakandi á 'hann. Hann var vandræðalegur á svipinn. „Er pabbi heima?“ spurði hann eftir drykklanga stund. „Já, hann er inni í skrifstof- unni sinni. Þú rnátt ekki trufla hann núna. Knútur og Eva fóru út í gönguferð eins og þeirra er vandi. Svo að þú getur trúað mér fyrir því, án þess að eiga á hættu að nokkur komi okkur að óvörum. Jæja-þá?“ Hann hló, gamla, góða, gáska- fulla hlátrinum sem hafði kom- ið henni til að láta of mikið eftir honum. „Þú ert undraverð, mamma. Aldrei er hægt að halda neinu leyndu fyrir þér. — Já, það er Margrét. Hún vill skilnað.“ „Terje!“ Hún lét sig fallast þunglega niður í stóra sófann. „Margrét, —• vill Margrét skilnað?“ Hún leit ásakandi á hann. „Ef að Margrét óskar eftir hjónaskilnaði, þá hefir ihún á- reiðanlega fulla ástæðu til þess. Ég þekki konuna þína, tengda- dóttur mína. Margrét er skyn- söm, trygg og tru, traustari en flestar aðrar konur.“ „Já, — það er þó satt og rétt,“ sagði Terje og andvarpaði. Hún varð að gæta sín, svo að hann sæi ekki glettni í augum hennar, — o-nei, nei, Margrét var svo sem enginn sérstakur engill þótt ihún segði það og svo horfði þessi grallari á hana og’ las hugsanir hennar. Hann vog- aði sér meira að segja að horf- ast í augu við hana. Það var einihver púki á gægjum lengst inni í augnakróknum. En, hæg- an nú .... „Margrét er alltof góð handa iþér, Terje, en ef til vill tekst henni að ala þig upp. Það hefi ég verið að vona. Ég var meira að segja farin að halda að það hefði tekizt. Ef að þú hefir nú eyðilagt allt og komið í veg fyrir að henni takist uppeldið, þá fyrirgef ég þér aldrei.“ „Vertu ekki svona ströng, mamma. Þú ert með rangar ágizkanir í ihuga. Og Margrét hefir rangt fyrir sér líka.“ Hann var að vísu grafalvar- legur, en hún var þó ekki alveg sannfærð. „Nú — nú, hvað gerðist þá?“ „Þú veizt að við tókurn á leigu i 33

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.