Bergmál - 01.11.1956, Side 36

Bergmál - 01.11.1956, Side 36
Október — Nóvember Bergmál ---------------------- litla sumarbústaðirm. rétt 'hjá Baðhótelinu.“ „Jú, — jú, ég held að ég viti það nú. Ykkur hefði verið nær að koma hingað og dvelja hér í ró og friði, eins og Margrét vildi.“ „Já — en það hefði orðið of langt fyrir mig, sem ekki kemst út úr borginni nema aðeins á laugardögum og sunnudögum, ekki satt?“ „No-o, — það getur verið. Baðstaðalífið er skemmtilegt, að minnsta kosti á meðan mað- ur er ekki of feitlaginn til að sýna sig á sundbol. — Nei, gríptu ekki fram í fyrir mér, strákur. Ég veit vel sjálf, hvernig ég lít út núna. Jæja, haltu áfram.“ „Viola Ewers bjó á Baðhótel- inu .... “ „Einmitt .... En hún giftist Nielsen útgerðarmanni, ekki satt?“ Hann hefir miklu meira fé handa á milli heldur en þú getur nokkurn tíma gert þér vonir um að hafa.“ „Hún er skilin við manninn. Annars skal ég gjarnan viður- kenna það sem ,þú áttir við — hún er blóðsuga.“ „Ég man það vel, góði minn, að ástin á milli ykkar var við suðumark hér áður fyrr. Og þótt þú ihafir nú séð hvernig hún er, þá stekkur þú samt og .... nei, þessir karlmenn. Eða kjána- legir strákaihvolpar eins og þú, réttara sagt. — Þú hefir, sem sagt uppveðrast af því, er hún fór nú á ný að dilla sér framan í þig, eða hvað? Og svo hljópst þú til og .... Beint fyrir aug- unum á Margréti. Það var svo sem auðvitað.“ „Mamma, ég gerði það alls ekki. Ég er alveg sárasaklaus. En því trúir Margrét ekki. Ég veit að vísu að það hefir litið þannig út. En hún vill ekki hlusta á mig. Trúir mér ekki. Hún getur verið alveg ótrúlega ósanngjörn og þvermóðskufull, það get ég sagt þér. Svo varð ég auðvitað reiður líka. Og hún sagðist vera farin. Ég gæti vel trúað að hún væri komin af stað hingað. Hún leitar víst alltaf til þín, þegar eitthvað bjátar á.“ „Já, það gerir hún,“ sagði frú Beate með ánægjuhreim. „Jæja- þá, má ég heyra alla söguna?“ Þegar Terje hafði lokið frá- sögninni leit hann á móður sína. „Trúirðu mér, mamma? Finn- urðu ekki að ég er að segja satt?“ 34

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.