Bergmál - 01.11.1956, Page 46

Bergmál - 01.11.1956, Page 46
Október — Nóvember Bergmál ---------------------- „Já,“ sagði hann. „Ég býst við að 'hann verði örlagaríkur.“ „Og við skulum verða svo ,hamingjusöm,“ sagði hún. „Mig langar mest til að segja öllum frá því. En ég er þó ekki alveg viss — ef til vill væri það ennþá yndislegra að við segðum eng- um frá því, ættum aðeins leyndarmálið tvö ein?“ „Já, ég gæti bezt trúað því,“ sagði hann. „Er það ekki dásamlegt?“ spurði hún. „Jú, svaraði hann. „Einstakt.“ „Guðdómlegt,“ sagði hún. „Heyrðu annars,“ sagði hann, „hefir þú nokkuð á móti því, að ég fái mér einn sjúss? Þú skilur, bara eins og læknislyf? Ég sver, að ég er steinhættur að drekka, — en ég hefi það á tilfinning- unni, að bráðum fari allt að hringsnúast fyrir augunum á mér.“ „Ég er viss um að þú hefir bara gott af því‘“ sagði hún. „Vesalingurinn minn, það er leiðinlegt, að þú skulir vera svona sloj. Ég skal fara og blanda einn gráan handa þér.“ „í hreinskilni sagt,“ sagði hann, „þá skil ég ekki að þú skulir yfirleitt vilja líta á mig eftir þennan skandala, sem ég gerði í gærkvöldi. Ég held að það væri bezt að ég gengi í klaustur einlhvers staðar í Tíbet.“ „Elsku kjáninn minn! Dettur þér í hug að ég sleppi þér nokk- urn tíman hér eftir. Þvílík fjar- stæða. Þú varst í raun og veru alveg ókey.“ Hún stökk á fætur, kyssti hann flausturslega á ennið og snaraðist út úr stof- unni. Ungi maðurinn gulgræni horfði á eftir henni og hristi höfuðið lengi og ákveðið, — svo faldi hann andlitið í höndum sér, sem voru rakar og titrandi. „Oh. Herra minn trúr,“ stundi hann. „Oh. Herra minn trúr. ■— Oh. Herra minn trúr. — Oh. Herra minn trúr.“ Bóndakonan: „Með leyfi að spyrja, hr. prestur, er skírnin fullgild ef skírnarvotturinn gefur barninu ekki svo mikið sem smá silfurskeið?" ★ Kennarinn: „Hvað þurfum við að gera fyrst af öllu til að við getum fengið fyrirgefningu syndanna?" Otto: „Syndga, hr. kennari." ★ 44

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.