Bergmál - 01.11.1956, Síða 50
Október — Nóvember
B E R G M Á L-----------------
sýnir hans, skarkali og dynur
vélanna yrði daufari og rykið
minna ....
Nokkra daga lá gjörðin ó-
hreyfð undir rúmi gamla manns-
ins í dimma og óvistlega her-
berginu hans. Við og við tók
hann hana þó fram og leit á
hana. Þessi óhreina, gráleita
gjörð mildaði gamla manninn
og veitti honum huggun. í hvert
skipti sem hann handlék hana
sá hann litla drenginn skýrar
fyrir hugskotssjónum sínum.
V.
Það var bjartur, hlýr sumar-
morgun, og fuglarnir sungu
glaðlegar . í krónum trjánna
heldur en vant var. Gamli mað-
urinn reis árla úr rekkju, tók
gjörðina sína og gekk alllangt
út fyrir borgina.
Hann hóstaði dálítið á meðan
hann klöngraðist yfir feyskjur
og þyrnirunna í skóginum. Hon-
um virtust trén óvenju þögul
og hörkuleg. Börkur þeirra
hafði aldrei verið svo dökkur
og skrælnaður. Gróðrarilmurinn
var sterkari en vant var, burkn-
arnir hávaxnari í ár en í fyrra.
Hér var hvorki ryk né dynur og
hitamistur sást meðfram jörðu
sumsstaðar inn á milli trjánna.
Gömlu fæturnir runnu til á
þurrum laufum og hnutu um
berar trjárætur.
Gamli maðurinn braut kvist
af einu trénu og lét gjörðína
sína 'hanga á honum. Hann kom
í rjóður. Þar var kyrrð og ró,
sólarbirta og unaður. Þúsund
milljónir daggardropa glóðu á
nýslegnum stráum.
Skyndilega lét gamli maður-
inn gjörðina renna fram af
kvistinum, sem hann hafði
borið hana á. Hann sló með
kvistinum svo að gjörðin valt af
stað yfir grasflötina. Gamli
maðurinn hló, hamingjusamari
en áður, og hljóp af stað á eftir
gjörðinni eins og litli drengur-
inn hafði gert. Hann hljóp í
krákustígum á eftir gjörðinni
og sveiflaði kvistinum hátt yfir
höfði sér alveg eins og litli
drengurinn hafði gert. Honum
fannst hann sjálfur vera orðinn
lítill drengur, elskaður og ham-
ingjusamur. Honum fannst að
móðir hans fylgdist með hverri
hreyfingu hans og gengi rólega
á eftir honum með bros á vör.
Hann varð léttari í skapi og vel-
líðan hans jókst með hverri
mínútu, alveg eins og barnsins
á fyrsta sólskinsdegi vorsins.
Rykgrátt geithafursskegg
48