Bergmál - 01.11.1956, Page 52
Um Sakarías Illugason
Um miðja 19. öld (eða nánar
1852) bjó sá maður á Hjöllum
í Guíudalssveit sem hét Ari
Einarsson, ásamt konu sinni,
Guðbjörgu Guðmundsdóttur.
Aðalmanntal 1850 segir Ara þá
vera 34 ára, en konu hans 35 ára.
Þá eru í heimili hjá þeim hjón-
um 9 manns, einn af þeim var
Sakarías Illugason, þá talinn 42
ára húsmaður, einhleypur. At-
vinna hans er talin kaupavinna.
1844 er hann, samkvæmt Min-
isteríalbók Gufudalsprestakalls,
innkominn í sóknina, úr Helga-
fellsprestakalli. Eigi er vitað
hvenær hann hefur eignazt
jörðina Hjalla, en 1852 er (hann
eigandi orðinn, og Ari þá leigu-
liði.
Sakarías var einkennilegur
maður í háttum, og virtist vera
geðveikur síðari árin, og fór þá
einatt einförum, svo Ari bóndi
hafði hann grunaðan um að hann
vildi fyrirfara sér, og fór oft að
forvitnast um hvert hann færi,
eða hvað hann hefðist að. Einu
sinni hafði hann sézt vera að
bauka eitthvað nálægt vörðu,
sem er á brúninni fyrir ofan bæ-
inn á Hjöllum, skammt norður
frá botni Stekkjardalsins, og
vissp menn ekkihverjuþaðsætti,
nema ef vera skyldi að hann
vildi grafa fé sitt í jörðu, því
vitað var að hann átti peninga
mikla sem 'hann var ávallt
hræddur um að hann kynni að
missa, því mælt var í hljóði, að
hann hefði áður fyrri orðið
fyrir slíkum glettum áður en
hann kom í sveitina. Nú var
hann búinn að vera á Hjöllum í
8 ár, eða réttara eiga þar heima.
En annars var hann sjómaður
suður á Yatnsleysuströnd á
vetrum og máske víðar. Yar
annars mikið gefinn fyrir verzl-
un og viðskipti og hafði grætt
drjúgum fé á því.
Þetta með einfarir Sakaríasar
þótti ekki einleikið. Einu sinni
isér Ari að Sakarías er kominn
fram í sker nokkuð frá landi,
en flætt er að verða fyrir það.
50