Bergmál - 01.11.1956, Qupperneq 53
Bergmál
1 956 -----------------------
Nær bóndi sér fljótlega í hross
og ríður því fram í skerið og
biður Sakarías að koma með sér
í land, því eins og hann sjái sé
þegar runnið fyrir skerið. Sak-
arías er tregur til og lætur sem
ekki sé, en lætu þó til leiðast um
síðir, og fer í land með Ara, og
er þá nær sundi er þeir komu í
land. Þetta sker var kallað
Stóra-Sker og lig'gur frammi á
leirunum til suðurs undan Stóra-
iHvammi, sem er utan við
Hrafnaskörðin svo kölluð, þar í
sjávarbökkunum innan við
Hjallabæinn. Oftlega var Ari
búinn áður að vera á hnotskóg
um ferðir Sakaríasar, en eigi
veit ég hvort það var að þessu
sinni, sem Sakarías hótaði Ara
hörðu ef hann eigi hætti því að
•hnýsast í ferðir sínar, ella kynni
hann að hitta sjálfan sig fyrir.
En hvað sem því leið, Iþá bjóst
Ari við að til eins mundi draga
um ferðir hans, svo þungsinna
var hann orðinn og sinnti lítt
mönnum.
Dag nokkurn síðla vetrar
verður Ari þess var, að Sakarías
fer að heiman og hleypur við
fót með byssu í hendi, og stefnir
sem leið liggur út að Þórisstöð-
um, sem er næsti bær utar með
firðinum. Stuttum spöl fyrir ut-
an túnið á Hjöllum fellur
Hjallaá til sjávar fram úr gljúfri
miklu, en þar er þó vað á ánni
á reiðgötunni. Þarna út að ánni
hverfur Sakarías, og skömmu
síðar hvað við skot frá ánni.
Leggur þá Ari leið sína út að
Þórisstöðum, en fer yfir ána
fyrir neðan alfaraleið og fær
þar ,á Þórisstöðum mann með
sér til baka inn að ánni. Þar
hagar svo til að þeim megin ár
er hár klettur sem er áfram-
hald af árgljúfrinu. En mann-
hæð eða svo frá vatninu er
klettastallur lágur sem vel
mátti sitja á, og halla sér upp að
berginu. Þarna hafði Sakarías
sezt og hallað sér upp að, sett
byssuihlaupið upp í munn sér
og hleypt af, og lá byssan þar
við hllið hans, en höfuð líksins
sundurskotið, sem geta má
nærri.
Þetta sem skrásett er hér
er eftir sögn húsfrú Sigríðar
Jónsdóttur móður þess er þetta
ritar, sem fluttis rúmum áratug
eftir þetta slys að Hjöllum
og bjó þar allan sinn búskap
með manni sínum Jóni Finns-
syni hreppstjóra.
Þegar slys þetta vildi til var
hreppstjóri í Gufudalssveit Arn-
51