Bergmál - 01.11.1956, Side 54
Framhaldssagan:
DOIÍTOR
CARR-
INGTON
ejtir Hermina Black
b.að séu til konur sem ekki standist hann. Hvernig er með yðui,
systir?“ >
„Ég-ég veit ekki,“ svaraði Jill íágt.
Sandra hló. „Ég geri ráð fyrir að systir hafi ekki nokkra (hug-
mynd um hvernig hann er sem maður, því að í augum ykkar
hjúkrunarkvennanna, eru sennilega allir læknar álíka og vélar.“
í þetta skipti svaraði Jill engu. Hún vissi ekki hvort hún átti
heldur að hlæja eða gráta, það var augljóst að Sandra hafði engan
grun um hvernig henni var innanbrjósts.
Dr. Carrington sýndi sig ekki í heila viku eftir þetta á Broad
Meadows, enda þótt 'hann hefði sagt að hann ætlaði að koma fyrr.
Einhver mjög þýðingarmikill sjúklingur hafði tekið upp tíma
hans svo mjög að hann varð að breyta öllum áætlunum sínum
finnur Jónsson í Gröf, föður-
bróðir Björns ritstjóra Jónsson-
ar, en sonur Jóns Arasonar
hreppstjóra og bónda í Djúpa-
dal, er var bróðir Finns á Eyri
Arasonar, en um þá frændur
segir séra Matthías í bók sinni
„Ferð um fornar stöðvar11: „Þeir
voru fræðimenn.“
Það sem hér er sagt nánar af
Sakaríasi Illugasyni er tekið
eftir „Annál 19. aldar“.
52