Goðasteinn - 01.09.2003, Síða 59
Goðasteinn 2003
seinni bflinn. Mér tókst að forða því að aka á hestinn en það mátti engu muna og
þar bjargaði að við vorum ekki á neinum hraðakstri og bremsurnar voru þá í góðu
lagi;
Á meðan við vorum í þessari fjárkaupaferð voru fjórir menn sendir til fjár-
kaupa fyrir Eyfellinga í sunnanverðum Borgarfirði. Það voru þeir Jón Sigurðsson
í Eyvindarhólum, Sigurjón Sigurgeirsson í Hlíð, Sigurjón Ólafsson á Efstu-Grund
og Ragnar Guðmundsson á Núpi. Þeir fóru nokkuð um í fjórum eða fimrn hrepp-
um í sunnanverðri Borgarfjarðarsýslu en fengu ekki nema fátt á hverjum stað
vegna þess að þar vom fjárskipti nýlega um garð gengin og bændur ekki búnir að
koma fjárstofni sínum upp að fullu. Samt fengust þar um 400 lömb, og voru þau
mun vænni en Vestfjarðalömbin.
Lömbunum hafði verið safnað sarnan í girðingu í brekkunum í Hvammi og
geymd þar þangað til allt var komið suður, en þá var liðinn um hálfur mánuður frá
því að við fjárkaupamenn höfðum lagt af stað vestur. Magnús Sigurjónsson bóndi
í Hvammi sá um að taka á móti lömbunum, oft að næturlagi, og að bólusetja þau
gegn bráðapest. Næsta verkefni var að skipta lömbunum milli þeiiTa sem rétt áttu
til að fá þau keypt. Þau voru nú rekin snemma morguns úr girðingunni í Hvammi
út í Seljalandsréttir. Þar var þeim fyrst skipt milli hreppanna tveggja. Austur-Ey-
fellingar fengu í sinn hlut 1106 lömb. Þeir fluttu sín lömb á bílum austur jafn-
óðum og skipt var. En hjá Vestur-Eyfellingum komu til skipta 1658 lömb. Þau
voru geymd í gerðinu við réttirnar til næsta dags en þá var þeim svo skipt milli
bæjanna í hreppnum eftir þeim hlutföllum sem hverjum og einum bar, en það
byggðist á því hversu margt fé menn höfðu átt fyrir niðurskurðinn, enda hefði það
verið talið fram á skattframtali unr næstu áramót áður en skorið var niður.
Búnar höfðu verið til 30 eða rúmlega 30 litlar stíur í almenningnum í réttunum,
og voru þær númeraðar. í fyrstu umferð voru látnar átta gimbrar í hverja stíu.
Reynt var að hafa sem jafnast í þeim þannig að þar væri bæði eitthvað af betri
lömbum og einnig eitthvað af lakari lömbum. Settir voru tveir eða þrír fjárglöggir
menn til að sjá um að ekki væri misjafnt í stíunum. Síðan var dregið urn þær.
Þegar búið var að afgreiða tvisvar úr þessum 30 stíum höfðu allir fengið eitthvað.
Þá var farin önnur umferð. Þannig var tekin hver umferðin af annarri þar til búið
var að skipta öllum gimbrunum. Hrútunum var skipt þannig að fyrst voru valdir
þeir álitlegustu, jafnmargir og bæirnir í hreppnum, þar sem sauðfé var skorið
niður, og dregið um þá, en í næstu umferð þeir hrútar sem taldir voru næstbestir
og þannig haldið áfram þar til að allir voru gengnir út.
Meðalverð lambanna sem keypt voru fyrir Eyfellinga haustið 1953 var kr.
252.90 + 25.00 sem var kostnaður við fjárkaupin, geymslu og skipti.
-57-