Goðasteinn - 01.09.2003, Page 63
Goðasteinn 2003
að hýrast í eyðibænum, þetta gerðum við, komum að Vogum skömmu fyrir hátta-
tíma, þar fengum við hinar ágætustu viðtökur og góðgerðir, sátum svo í besta yfir-
læti fram á nótt, okkur var boðin gisting en þáðum hana ekki þar sem við þurftum
að vera til taks strax með birtingu til þess að líta eftir lömbunum.
Bflarnir sem taka áttu lömbin höfðu verið á Arngerðareyri um nóttina, þeir
komu svo snemma morguns og var þá rekið inn og síðan látið á bílana. Þegar því
var lokið lagði ég af stað sömu leið til baka ásamt Rögnu á Laugabóli en einhverj-
um erindum þurfti Guðjón á Laugabóli að sinna þarna innfrá svo að hann fór ekki
heim strax með okkur.
Þennan dag var veðrið eins og það getur best verið að hausti til. Það var því
skemmtilegt að ríða þessa fögru leið í rólegheitum í blíðunni, Ragna var líka
ágætur ferðafélagi. Hún sagði mér margt fróðlegt um sveitina og atburði sem þar
höfðu gerst. Við komum inn á tveimur eða þremur bæjum sem á leið okkar urðu
og þáðum þar veitingar, við þurftum líka á því að halda, eins og ævinlega í öllum
þessum ferðum. Ég fékk alls staðar góðar móttökur hvar sem ég kom í þessum
fjárkaupaferðum og hef ekki annað en góðar minningar um þær og viðskiptin við
allt það fólk sem ég kynntist þarna.
Þegar við komum að Laugabóli var dagur að kvöldi kominn. Þar gisti ég um
nóttina, fór síðan næsta dag út að Hjöllum í Skötufirði en kom við í Ögri til þess
að skila hestinum sem Hafliði hafði lánað mér, gekk þaðan út í Skötufjörð, gisti
svo á Hjöllum, keypti síðan næsta dag lömb á Skarði hjá Jóhannesi og á Hjöllum
hjá Pétri, fékk síðan vélbát sem þar var til að skjóta mér inn að Kálfavík, gekk svo
að Borg og keypti hjá Guðmundi en fór aftur að Kálfavík og gisti þar. Þegar ég
ætlaði að fara að vigta lömbin hjá Guðröði í Kálfavík sagði hann: „Það verður nú
færra sem ég get selt en ég hefði viljað þar sem mig vantar 12 ær, hann Guð-
mundur á Borg nágranni minn fór í gær upp á fjall með þrjá hunda og sigaði þeim
svo í allar áttir, ég býst helst við að hann hafi tætt þær allar ofan fyrir þessar ær
sem mig vantar.“
Eftir að ég hafði vigtað lömbin í Kálfavík var ég fluttur vestur yfir fjörðinn að
Eyri. Þá var besta veður eins og undanfarna daga. Ég vigtaði svo og valdi lömb á
bæjunum vestan megin fjarðarins þennan dag og þar með hafði ég lokið við að
kaupa það sem mér var ætlað.
A tveimur bæjum í Ögurhreppi keyptu aðrir. Það voru Þernuvík sem átti betur
samleið með bæjum í Reykjarfjarðarhreppi og Vigur en þar keyptu þeir sem verið
höfðu að kaupa í Súðavíkur- eða Eyrarhreppum.
Daginn eftir voru lömbin úr Skötufirðinum flutt á bát inn að Arngerðareyri og
látin þar á bílana sem fluttu þau suður.
Ég gisti svo á Arngerðareyri næstu nótt en tók síðan á móti lömbum sem komu
með bát utan úr Djúpi og hjálpaði til við að láta þau á bíla daginn eftir en fór svo
-61-