Goðasteinn - 01.09.2003, Side 70

Goðasteinn - 01.09.2003, Side 70
Goðasteinn 2003 og síðan hvert af öðru, alls urðu börn þeirra níu. Málfríður hrökklaðist síðan af heimilinu fyrst um stundarsakir, en síðan endanlega. Börn þeirra Málfríöar urðu alls sex. Arið 1882 hætti Magnús að búa og fluttist til Hafnarfjarðar, stundaði þar járnsmíðar. Sigríður flutti þangað til hans og bjuggu þau þar saman þau ár sem Magnús átti ólifuð. Hann lést árið 1889, 58 ára gamall. Eiríkur sonur séra Benedikts var alla tíð vinnumaður hjá föður sínum. Sumarið 1868 fór hann út að Hjálmholti í Flóa í kunningjaheimsókn. Þegar hann kom að ferjustaðnum Króta var ferjumaðurinn ekki kominn, þegar hann kom að ánni utanmegin, en hann var þá ekkert að bíða heldur lagði út í ána og ætlaði að sund- ríða, en þegar ferjumaðurinn kom að ánni, voru maður og hestur horfinn. Hestur- inn fannst rekinn einhvers staðar niður í Flóa að mig minnir, en lík Eiríks fannst aldrei. Eiríkur átti unnustu Olöfu Jónsdóttur frá Akbraut Einarssonar. Hún eignaðist dóttur mánuði eftir að Eiríkur drukknaði, hún hlaut nafnið Eyfríður. Vorið eftir að Eyfríður fæddist fór Ólöf móðir hennar í brúðkaupsveislu upp á Land. Hesturinn sem hún reið hrökk skyndilega við þegar fugl flaug upp og hún féll af baki og hryggbrotnaði. Hún lést skömmu síðar þetta vor 1869. Eyfríður dóttir Eiríks og Ólafar ólst upp hjá afa sínum og ömmu meðan hennar naut við allt til fullorðins ára. Sólveig dóttir Málfríðar og Magnúsar ólst að miklu leyti upp þar líka og fleiri börn ólust þar upp. Málfríður kona séra Benedikts lést 10. júní 1872, vantaði þá mánuð í að verða sjötug. Hún var talin ágætis kona. Eftir þetta bjó séra Benedikt með ráðskonu. Ráðskonan var Halldóra Halldórsdóttir frá Vatnagarði á Landi. Halldóra giftist árið 1880 Páli Finnssyni frá Stúfholti, sem var ráðsmaður séra Benedikts. Þegar séra Benedikt lét af embætti árið 1884 flutti hann að Saurbæ þar sem þau Páll og Halldóra tóku við búi og í skjóli þeirra lifði hann það sem eftir var, alls 19 ár. Séra Benedikt lést 4. maí 1903, var þá 96 ára og misseri betur. Málfríður dóttir séra Benedikts var lengi í vinnumennsku eftir að hún fór frá Ketilsstöðum, en síðan lengi í skjóli dætra sinna, fyrst í Nefsholti hjá Sólveigu, en síðan í Snjallsteinshöfða hjá Halldóru og þar lést hún 19. desember 1925, 92 ára. Þá skal að lokum getið barnabarna séra Benedikts, þau voru alls sjö, en sex komust til fullorðinsára. Börn Málfríðar eru talin eftir aldri: 1. Brynjólfur f. 1861. Hann gekk skólaveginn, lauk fyrst gagnfræðaprófi og síðan kennaraprófi frá Flensborg í Hafnarfirði, stundaði síðan kennslu í allmörg ár, lengst á Suðurnesjum. Einhvern tíma skömmu eftir aldamótin var Brynjólfur kaupamaður á Hriflu í Ljósavatnshreppi hjá foreldrum Jónasar. Er sagt að Jónas hafi þá verið óráðinn um framtíðina og að Brynjólfur hafi mjög hvatt hann að ganga menntaveginn og haft einhver áhrif á hann í þeim efnum. Síðustu ár æfi sinnar var Brynjólfur vinnumaður í Fífuhvammi í Kópavogi. Æfilok hans urðu þau að hann var að flytja mjólk á hestvagni, hesturinn fældist -68-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1974

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.