Goðasteinn - 01.09.2003, Side 74
Goðasteinn 2003
var líka sjón sögu ríkari og gat auðveldlega orðið hlutskipti hvers sem var á næstu
báru, en ekkert af því sem sagt var upphátt þessa nótt bar á nokkurn hátt slíkum
bollaleggingum vitni.
Ef til vill væri ekki alveg óviðeigandi að láta fylgja hér með nokkur heilabrot
frá sjálfum mér, sem urðu til þessa umræddu nótt. Ég vil þó taka það fram, að þær
eiga ekki að túlka neina hetjudáð um mig, hvorki þá eða nú, sem hluttakanda í
þessum harmleik, og því síður að ég hafi gleymt félögum mínum, sem þá kynnu
að vera á lífi. Ég var sem sagt að velta því fyrir mér, hvernig ástandið mundi
verða að óbreyttum aðstæðum um borð á næstu fjöru, en til þess tíma hlaut að
vera, eftir ónákvæmum ályktunum sjávarfalla að minnsta kosti 6-8 klukkustundir,
og ástæða til að halda að á þeim tíma mundu geta orðið alvarlegar breytingar
hvað afkomu skipshafnarinnar snerti. Ég ákvað þá með sjálfum mér, að ef ég yrði
í svipuðu ásigkomulagi og ég taldi mig þá vera, að láta mig þá fara í sjóinn og
gera síðustu tilraun til að reyna að komast í land, annaðhvort dauður eða lifandi.
Ég studdi aðallega þessa ákvörðun mína við draum, sem mig hafði nýlega dreymt,
sem þó verður ekki sagður hér; en sem skildi þó eftir hjá mér ótrygga heimild eða
veika von um, að líklega kæmist ég einhvern veginn í land. Mér var þó fullkom-
lega ljóst, að möguleikar á björgun á þennan hátt voru harla litlir, en mér var jafn
ljóst, að nefnd úrræði hlutu allavega að ráða úrslitum á annan hvorn veginn. Ann-
ars er þetta eins konar aukaatriði frá þeirri sögu, sem þarna var raunverulega að
gerast og þessi fátæklega frásögn er fyrst og fremst um.
Skutu þeir úr línubyssunni til okkar, en vegna vindstöðu og veðurofsa bar
línuna langt af leið og sáum við ekkert eftir af henni. Annað skotið fór á sömu
leið út í veður og vind. Og í þriðja sinn var skotið og lenti þá línan yfir afturbóm-
una eða sem næst aftan við mitt skip, og kom okkur saman um, sem reyndum að
fylgjast með því sem var að gerast, að algjör bamaskapur væri að gera tilraun til
að nálgast hana þar, séð frá ríkjandi ástandi og ólögum sem yfir skipið riðu. Hefði
það ekki getað haft annað í för með sér en eitt eða fleiri mannslíf og töldum við
að meira en nóg væri þegar komið af því ef annars væri kostur. En þegar við
vorum að íhuga málið, sem ekki virtist sérlega glæsilegt, skeði sá óvænti og
merkilegi atburður, að næst þegar brotsjór gekk yfir skipið kom hann með bugt af
línunni til okkar á hvalbaknum og gátum við gripið hana áður en hún sogaðist út
aftur, og þar með vorum við komnir í samband við menn í landi. Og um leið hefur
sjálfsagt vaknað hjá flestum eða öllum nýr vonarneisti um að fá að halda eitthvað
lengur áfram að berjast hinni oft tvísýnu og kuldalegu lífsbaráttu, og þrátt fyrir að
hin aflíðandi nótt hafi sýnt okkur svo eftirminnilega skuggahliðar lífsins og hin
lítt eftirsóknarverðu endalok mannlegrar tilveru hér í heimi.
Ekki vil ég segja neitt um, hvort nokkur hafi í alvöru íhugað þá spurningu
þessa nótt, hvor leiðin mundi hafa upp á meira eða betra að bjóða; kannski hefur
-72