Goðasteinn - 01.09.2003, Blaðsíða 76

Goðasteinn - 01.09.2003, Blaðsíða 76
Goðasteinn 2003 tóg, sem sýnilega var ætlað sem burðar- eða líflína, sem stóllinn skyldi dreginn eftir í hanafæti ásamt því sem honum var ætlað að annast flutning á. Þarna fylgdu ýmsir nauðsynlegir hlutir, svo sem blökk og lína, svo að hægt væri að draga stólinn að og frá skipinu. Til þess að geta komið mönnunum í stólinn með sæmilega góðu móti og án þess að eiga neitt á hættu varð að festa líflínuna upp í salningu eða því sem næst upp í masturstopp; með því móti náðist stóllinn inn á hvalbakinn. Það kom umyrðalaust í hlut okkar Kristins Stefánssonar að fara með tógið upp í mastur, enda vorum við þarna þeir einu, sem töldust yfirmenn skipsins; Kristinn var annar stýrimaður en ég bátsmaður. Við fórum svo sitthvorum megin upp í mastrið, drógum til okkar tógið og festum því yfir mastrið svo vel, að ekki skyldi losna. Að því búnu strengdu þeir tógið í landi eins og hægt var. Við komum okkur svo saman um, þama uppi, að Kristinn færi einn í stólnum fyrstu ferðina, þar sem mjög hásjávað var og sýnilegt að hann mundi dragast í sjó meirihluta leiðarinnar. Fór svo Kristinn niður í stólinn og í land, en ég fór niður á hvalbak. Við vorum ekki á hreinu með hvort við mættum hafa einn eða tvo í stólnum. Það var þó þegjandi afráðið að hafa tvo í honum, enda mun betri „ballans“ á honum þannig og auðvelt fyrir tvo að halda sér í hanafótinn sem lá upp í líflínuna. Aðaláherslan var lögð á að menn héldu sér sem fastast og slepptu ekki taki fyrr en þeir væru komnir í manna hendur. Nii var björgunin sem sagt komin í fullan gang og gekk ágætlega. Sýnilegt var, að nokkuð langur tími mundi verða frá því að flestir yrðu komnir í land og þar til að þeir, sem í afturreiðanum voru, kæmust fram á, því að ennþá lá skipið mjög undir áföllum, enda tæplega hálfútfallinn sjór. Ég var þegar búinn að ákveða, án þess að hafa orð á því, að bíða eftir þeim þar til að þeir kæmust fram á. Ekki ætlaði ég að biðja neinn að bíða með mér, því flestir virtust hafa áhuga fyrir að komast sem fyrst í land. Enginn reyndi að komast í stólinn án þess að vera til kvaddur. Þá kom til mín Sigursveinn Sveinsson frá Fossi í Mýrdal og spurði mig hvort ég vildi að hann biði með mér. Ég var honum mjög þakklátur fyrir hans góða boð og þáði það með þökkum. Einn ungur maður, sem ég nafngreini ekki, spurði um leið og hann var aðstoðaður við að komast í stólinn, hvar allir hinir væru. Ég sagði honum að drífa sig í stólinn og halda sér eins fast og hann gæti, þeir væru allir á vísum stað. Nú hafði dregið talsvert úr sjó og vindi og gengið til norðurs og kólnað. Við sáum Reykjanesvitann aftan til á bakborða og Grindavíkurvitann á stjórnborða, svo greinilegt var, að skipið hafði strandað vestast í Grindavík. Við Sigursveinn vorum nú búnir að vera góða stund einir á hvalbaknum og höfðum það sæmilegt samanborið við það, sem á undan var gengið. Stóllinn var dreginn út til okkar og við hann voru festir tveir hitabrúsar með lútsterku brennivínskaffi. -74-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1974

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.