Goðasteinn - 01.09.2003, Qupperneq 167
Goðasteinn 2003
Látnir 2002
bera. Þessi lýsing á við Gísla. Þó var hann léttur í lund og átti auðvelt með að umgangast
fólk. Það fékk allur sá fjöldi sumarbarna og unglinga, sem var í sveit í Kaldárholti, að
kynnast í fari hans.
En fyrst og helst var Gísli traustur vinur, heill og sannur sem aldrei brást, bóngóður,
hjálpfús og greiðvikinn. Hann var einn af þeim ósérhlífnu og hljóðlátu, samt áhrifamaður
í hópi, tranaði sér ekki fram, en orð hans höfðu vægi. Hann var góður heim að sækja og
gestrisnin þeim hjónum báðum eðlislæg. Þeir, sem að garði bar í Kaldárholti, fundu að
þangað var gott að koma og hitta fyrir þau hjón sem tóku á móti öllum af gestrisni og
hjartahlýju. Hann var músíkalskur og orgelleikur var meðal þess sem hann greip í þegar
tóm gafst til og lék af fingrum fram, en í þeirri mennt var hann sjálfmenntaður. Og ein-
stakt yndi hafði hann af því að renna fyrir fisk, bæði í ám og ekki síst þegar farið var til
Vatna, því það var í samræmi við lífssýn hans að nýta það sem landið gefur af sér.
Veiðiskapinn stundaði hann þegar tóm gafst til og eiga dætur hans og bræður dýrmætar
minningar frá slíkum stundum.
Gísli hélt dagbók, um langt árabil, - allt frá unglingsárum fram á síðasta dag, sam-
viskusamlega í skráð hvern einasta dag, allt um dagsins önn, veðurfar og líkast til ýmis-
legt fleira. Hann fylgdist vel með, velti fyrir sér málefnum líðandi stundar, hinum al-
mennu jafnt sem hinum sértæku sem vörðuðu hans nánasta umhverfi. Hann var sérlega
fróður um allt sem snerti náttúruna, ekki síst jarðsögu landsins. Þess ber að geta að fyrsta
mælastöðin frá Rannsóknarmiðstöðinni í jarðskálftamælingum var einmitt sett upp í
Kaldárholti fyrir um tveimur áratugum, og upp frá því hafa þau hjón sinnt ómetanlegu
starfi við umsýslu þeirrar stöðvar. Sönnuðu þessar rannsóknir ekki síst gildi sitt við
Suðurlandsskjálftana síðustu.
Fyrir um réttu ári greindist Gísli með þann sjúkdóm sem fáum eirir, en hann tókst á
við hann af æðruleysi. í veikindum hans stóð Guðrún við hlið hans og annaðist hann af
þeirri umhyggju og alúð sem henni var framast unnt. Gísli andaðist á Landspítalanum 19.
febrúar sl. og fór útför hans fram frá Hagakirkju 2. mars 2002.
Sr. Halldóra J. Þorvarðardóttir, Fellsmúla
Guðjón Helgason frá Hlíðarenda
Guðjón Helgason fæddist á Hlíðarenda 22. mars 1916.
Foreldrar hans voru hjónin Kristín Eyjólfsdóttir húsfreyja
frá Hofi í Öræfum og Helgi Erlendsson bóndi á Hlíðarenda.
Systkini Guðjóns, sem bæði lifa hann, eru Ingibjörg Svava
og Gunnar.
Guðjón sleit barnsskónum á „rausnargarði háum undir
hlíð“, við ástríki foreldra sinna og systkina, sem og föður-
foreldranna, Erlends Erlendssonar og Margrétar Guðmunds-
-165-