Goðasteinn - 01.09.2003, Page 168

Goðasteinn - 01.09.2003, Page 168
Látnir 2002 Goðasteinn 2003 dóttur, sem einnig voru á heimilinu. Hann drakk í sig fegurð náttúrunnar og andblæ sögunnar, eignaðist fyrirmyndir úr Njálssögu og hreifst af nafnkunnum hetjum hennar. Gestkvæmt var jafnan á Hlíðarenda eins og löngunr fyiT og síðar, greiðasala í þá daga og mörgum ferðalangnum fylgt á leið inn í Þórsmörk og austur undir Eyjafjöll. Guðjón naut hefðbundinnar barnafræðslu sinnar kynslóðar, vandist snemma við vinnu og gagnsemi á búi foreldranna og fór á vertíð til Vestmannaeyja ekki eldri en 16 ára. Hann dvaldi vetrar- tíma 1931-1932 í Haukadalsskóla í Biskupstungum hjá þeim mæta íþróttafrömuði og hugsjónamanni ungmennafélagshreyfingarinnar, Sigurði Greipssyni. Vistin þar varð Guðjóni hugstæð og eftirminnileg, og þar efldist enn áhugi hans á hvers kyns íþróttum og aflraunum sem fylgdi honum löngum. Guðjón var handlaginn frá unga aldri og lét vel að vinna við vélar. Hann óx upp inn í öld véltækni og framfara, og tók af áhuga þátt í þeim breytingum. Fór hann á dráttarvél víða um sveitir Rangárþings og vann tún og akra til ræktunar, var í hópi fyrstu manna til að aka fólki inn í Þórsmörk, og átti mótorhjól fyrr en aðrir menn í Rangárþingi. Viðgerðir tækjanna sá hann um sjálfur, og lærði af reynslunni að útbúa upp á eigin spýtur margt það sem þurfti til viðhalds og lagfæringa, og náði við það prýðilegri leikni við smíðar, bæði á málma og tré. Liggur margur kjörgripurinn eftir hann, bæði leikföng og húsgögn. Guðjón hóf búskap á Hlíðarenda árið 1942, og ári síðar kvæntist hann fyrri konu sinni, Sigríði Björnsdóttur frá Rauðnefsstöðum á Rangárvöllum. Byggðu þau nýbýlið Rauðaskriður 1945 og bjuggu þar til 1948. Guðjón og Sigríður skildu, en börn þeirra eru Hjörtur, búsettur á Hellu, kvæntur Sólveigu Stolzenwald, Örn Helgi, búsettur á Hellu, var kvæntur Unni Kristjánsdóttur, en þau skildu, Björn, búsettur á Syðri-Hömrum í Ása- hreppi, kvæntur Vigdísi Þorsteinsdóttur og Sigurveig búsett á Laugarbakka í Miðfirði, gift Sigfúsi Traustasyni. Sonur Guðjóns og Sigurveigar Ólafsdóttur frá Syðstu-Mörk undir Eyjafjöllum er Pálmi, búsettur í Reykjavík. Guðjón fluttist árið 1948 ásamt fjölskyldu sinni að Haugum í Stafholtstungum í Borgarfirði. Ári síðar fluttist hann að Stafholti og bjó þar til 1953, er hann fluttist austur í Árnesþing þar sem hann var búsettur næsta áratuginn, á Hólum í Biskupstungum til 1958, síðan að Hrauni í Grímsnesi til 1960 og á Mosfelli í sömu sveit uns hann lokaði hringnum og lluttist að Rauðaskriðum á ný árið 1963. Á sjötta áratugnum skildu leiðir þeirra Sigríðar, en þau Þóra Jenný Ágústsdóttir frá Saxhóli í Breiðuvík á Snæfellsnesi tóku upp sambúð á þeim árum, og gengu í hjónaband 1969. Börn þeirra eru Ágústa, búsett á Hvolsvelli, gift Guðjóni Guðmundssyni, Ragnheiður, lést tæplega tvítug að aldri 1974, Bergþór, búsettur á Hvolsvelli, kvæntur Olgu Elísu Guðmundsdóttur, ísleifur Helgi býr í Noregi, var kvæntur Sigrúnu Halldórsdóttur, en þau skildu, Þorsteinn býr á Rauðaskriðum, kvæntur Ingveldi Guðnýju Sveinsdóttur, og Sigurgeir er búsettur í Reykjavík; kona hans er Ingibjörg Ragnheiður Grétarsdóttir. Við lát Guðjóns voru afkomendur hans 50 talsins, 11 börn, 28 barnabörn og 11 langafabörn. Guðjón var söngelskur maður og söngvinn allt frá æskuárum. Hann kunni ógrynni laga og ljóða, söng við vinnu sína seint og snemma, tók lagið í góðra vina hópi og lagði -166-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1974

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.