Goðasteinn - 01.09.2003, Side 183
Goðasteinn 2003
Látnir 2002
Jón Jörgensson Kjerúlf, Holti, Eyjafjöllum
Jón Jörgensson Kjerúlf fæddist 8. september 1906 í
Brekkugerði í Fljótsdal. Foreldrar hans voru Jörgen
Eiríksson Kjerúlf frá Arnheiðarstöðum og Elísabet
Jónsdóttir frá Brekkugerði, og var hann þriðji elstur í hópi
11 systkina, þeirra Eiríks, Margrétar, Sigurðar, Sigríðar,
Jóhönnu, Guðrúnar Droplaugar, Huldu, Unu, Herdísar og
Regínu. Eftirlifandi eru: Guðrún Droplaug, Hulda og
Regína. Hann, ásamt nokkrum systkinum sínum, ólst upp
í Brekkugerði hjá móðurömmu sinni Margréti Sveinsdótt-
ur frá Bessastöðum, þar sem foreldrar hans bjuggu fyrst
en þau fluttu síðan að Húsum, jörð sem tilheyrði Brekkugerði og bjuggu þar með börnum
sínum. Síðar fluttist fjölskyldan að Stóra-Sandfelli í Skriðdal og þar sem faðir hans starf-
aði löngum utan heimilisins, féll það í hendur Jóns að bera ábyrgð á búinu. Þá ábyrgð
axlaði hann 16 ára gamall, enda hafði hann snemma sýnt hvað í honum bjó og að hann
var þess verður að vera trúað fyrir slíkri ábyrgð og vel liðtækur til verka.
Á þessum árum gáfust ekki mörg tækifæri til mennta fyrir fátækan sveitapilt, en af því
að góðar gáfur voru til staðar og með dugnaði og einlægri löngun stundaði hann nám við
héraðsskólann að Eiðum í tvö ár og varð gagnfræðingur þaðan vorið 1927.
Árið 1935 festi Jón ráð sitt og gekk að eiga konuna sem hann hafði nokkru fyrr fest
ástarauga á, frænku sína Þorbjörgu Metúsalemsdóttur Kjérúlf frá Hrafnkelsstöðum sem
varð lífsförunautur hans upp frá því. Þar kom til liðs við hann mikil gæðakona, sem bjó
vel að kostum og arfi æskuáranna. Var það upphaf langs og farsæls búskapar og stýrði
Þorbjörg heimili þeirra af fágaðri háttprýði og reglusemi sem einkenndi öll hennar störf.
Þau eignuðust dæturnar fjórar, þær 1) Guðrúnu Elísabetu f. 1939 hún er sjúkraliði, býr í
Reykjavík og á þrjú börn, 2) Margréti, f. 1944, húsmóðir í Holti gift Halldóri Gunnars-
syni sóknarpresti og eiga þau sjö börn, 3) Jónu Sigríði, f. 1946, hótelstýra í Vík, gift Árna
Oddsteinssyni, og þau eiga tvö börn. Yngst er 4) Aðalbjörg, f. 1953, gift Jögvan
Jóhannessen, og búa þau í Funningi í Færeyjum.
Jón og Þorbjörg hófu búskap að Hreiðarstöðum í Fellum, en fluttu árið 1943 að
Húsum þegar bróðir hans Eiríkur lét þar af búi. Þegar þangað kom þurfti að taka til
hendinni, girða heimalönd og rækta tún, og árin sem í hönd fóru voru miklir vinnutímar.
Og þó ólík væru um margt stóðu þau hjón samhent að uppbyggingu búsins og jarðarinnar
og uppeldi dætranna. Eftir því sem þær uxu úr grasi fóru þær að taka til hendinni og
aðstoða foreldra sína við búskapinn. Og farsæld ríkti í búi þeirra hjóna vegna samheldni
og umhyggju um búpening og öll störf.
Jón tileinkaði sér það umburðarlyndi, ögun og tillitssemi sem gildir í umgengni við
landið og náttúruna. Hann var bóndi í orðsins bestu merkingu. Trúði á mátt og frjómagn
-181-