Stjörnur - 01.04.1951, Síða 6
Michele
Morgan.
HIN GLÆSILEGA, franska
stjarna með fögru, dreymandi
augun, Michele Morgan, segir um
sjálfa sig: „Ég hef alltaf vitað það,
að ég mundi einhverntíma verða
leikkona. Þegar ég var þriggja
ára, las spámaður það í lófanum
á mér, og því hef ég' alltaf starfað
með það vissa markmið fyrir aug-
um.“ — Foreldi'ar hennar hlúðu
að þessari hneigð og leyfðu Mic-
hele að taka sér tíma í allskonar
leikfimi og auk þess settu þau
hana til náms hjá frægum leikara.
Þegar hún var 15 ára gömul fékk
hún „statista“-hlutverk hjá kvik-
myndafélagi einu. — Tveim árum
seinna fékk hún hlutverk í kvik-
mynd einni af tilviljun. Ein af
vinkonum Michele hafði smáhlut-
verk í myndinni, og þar sem hún
varð veik meðan á upptökunni
stóð, fékk Michele Morgan að
koma í skarðið. Hún gekk undir
próf, og kunnur leikstjóri, Marc‘
Allegret, bauðst til að gera samn-
ing við hana. Hann var undir-
skrifaður, þegar hún var 17 ára,
á afmælisdaginn hennar. Fyrsta
kvikmyndin, sem hún lék í var
mjög vel tekið. Næst fékk hún
sjálfan Charles Boyer til að leika
á móti sér, og í „Hafskipabryggja
í þoku“ lék hún móti Jean
Gabin.
— Mesta ánægja Michele Morg-
an er að sjá kvikmyndir, þótt
merkilegt sé. „Ég horfi á allskonar
kvikmyndir, hvort heldur þær eru
broslegs, alvarlegs eða glæpsam-
legs efnis. Það er nauðsynlegt,“
segir hún. „Maður getur alltaf
lært eitthvað, og kvikmyndin er
skemmtileg kennsluaðferð.“
(J STJÖRNUR