Stjörnur - 01.04.1951, Page 22
ofan í æ á rekstri hússins. Fólkið
kærði sig ekki um að sjá kvik-
myndirnar, sem hann sýndi. Það
var orðið þreytt á allri þessari
ómerkilegu músik og hávaða.
Hryggur í huga minntist hann
hinnar miklu aðsóknar, sem hann
hafði haft fyrir 20 árum, þegar
hann sýndi Valentinomyndina
„Sheiken11. Það var ekkert á móti
því að reyna það hvort hún hefði
aðdráttarafl enn. Honum tókst að
fá „kopíu“ frá Paramount félag-
inu, og nú varð geysimikil aðsókn
— í meira en fjóra mánuði var
„Sheiken“ sýndur fyrir troðfullu
húsi. Að lokum græddi hann svo
mikið á myndinni, að hann gat
byggt sér nýtt hús, er samsvaraði
kröfum tímans.
Paramount félagið lét sér þetta
að kenningu verða. Það sá að
borga mundi sig að láta Valentino
sýna sig á ný. Og nú eru gömlu
myndirnar víða sýndar með tón-
list og einstaka hljómupptöku. En
mynd um ævi Valentinos er vænt-
anleg.
★
Kvikmyndin um Valentino hef-
ur verið í undirbúningi í tvö ár.
Eins og margir vita var Valentino
tvígiftur og meira að segja er það
margra mál, að hann hafi árum
saman lifað í tvíkvæni. Báðar eru
ekkjur hans á lífi og heita þær
Jean Acker og Nataska Rambova.
Mjög hefur kvikmyndaframleið-
endunum leikið hugur á, að fá
leyfi þessara kvenna beggja til að
fá að rekja sögur þeirra í kvik-
myndinni, en þær hafa báðar ein-
dregið hafnað þeim tilmælum.
Þess vegna verður að búa til per-
sónur og í stað tveggja ástkvenna
Valentinos — eins og þær voru í
veruleikanum — verða þær þrjár
í kvikmyndinni.
Ekki hefur verið ráðið hvaða
leikkonur fari með þessi hlut-
verk, en 36 ára gamall leikari,
Walter Craig að nafni á að leika
Valentino. Hann er þýzkur að
ætt, vakti um skeið á sér mikla
athygli við Broadweyleikhúsið í
New York á árunum fyrir stríð,
en haft sig lítið frammi síðustu
árin. Hann er mjög líkur Valen-
tino í útliti.
Til aðstoðar við kvikmyndina
hafa verið kvaddir ýmsir leikar-
ar og leikstjórar, sem á sínum
tíma voru vinir og samstarfsmenn
hinnar frægu og vinsælu kvik-
myndahetju.
Valentino var sikileyskur að
ætt, en myndin hefst á því, er
hann gerist sendisveinn á New
York-hóteli, og lýkur með hinni
frægu jarðarför hans í sömu borg,
en hann var allri bandarísku þjóð-
inni — og raunar öllum kvik-
myndaunnendum um allan heim
— slíkur harmdauði, að vart eru
sagnir um slíka þjóðarsorg sem
þá.
22