Goðasteinn - 01.09.2011, Síða 116
114
Goðasteinn 2011
sagði sjálfur: „Þarna er nægt vatn, en hvergi gott vatnsból vestan ár, og svo er
fegurðin mikil. Áin falleg.“14
Það hlýtur að þurfa mikla náttúrufegurð til að heilla Vatnsdæling.
Á þessum stað sem hann nefndi Hellu, hóf Þorsteinn verslun árið 1927. um
það segir Helga Skúladóttir í bók sinni Rangárvellir: „Verslunin var aðallega
vöruskiptaverslun. Hann reisti sláturhús, tekur svo fénað og alls konar vörur af
bændum upp í viðskipti. Hann mun þó eiga mikið útistandandi , sem vafi gæti
leikið á, að hann gæti fengið nokkurn tíma borgað. Þorsteinn þykir ekki jafnfær
til innheimtu sem útsölu, sagður þó hafa gott verslunarvit og búmannsvit.“15
Kreppan reið þessari verslun Þorsteins að fullu enda gripu stjórnvöld til þess
ráðs að fella niður skuldir bænda að miklum hluta með úrræðum Kreppulána-
sjóðs, en Björn sonur hans segir að 1934 hafi allt að 95% af skuldum bænda við
hann verið afskrifaðar.16 Þannig fer oft fyrir brautryðjendum. en aðrir feta þá
slóð sem þeir hafa rutt. Á þessum tíma voru uppi hugmyndir meðal stórhuga
manna í héraði um stofnun kaupfélags. Kaupfélög voru fyrir, bæði á Rauðalæk
og Hvolsvelli á þeim tíma. Nú réðust nokkrir menn í það að kaupa verslun
Þorsteins og stofna kaupfélag á Hellu. Þetta var árið 1935. Þetta nýja kaupfélag
hafði þá sérstöðu í héraði að standa utan Sambands íslenskra samvinnufélaga
en eins og ingólfur Jónsson kaupfélagsstjóri segir: „Þess var vandlega gætt við
stofnun þess, að það fullnægði að öllu leyti ákvæðum laga um samvinnufélög,
þannig að það gæti notið ýmissa þeirra forréttinda, sem þau nutu, bæði hvað
snerti skattaálagningu og vöruöflun.“17 Var þetta nauðsynlegt vegna strangra
innflutningshafta sem ríktu á þessum tímum.
Verslunarsvæðið stækkaði með kaupfélaginu og náði fljótlega yfir alla sýsl-
una. Bauð það upp á aukna samkeppni. Markmiðið var að bæta verslun í hér-
aðinu og koma afurðum bænda í gott verð og útvega útlenda vöru á sem hag-
stæðustu verði.
Hinn 26. mars 2010 voru liðin 75 ár frá stofnfundi þessa kaupfélags, kaup-
félags sem nefnt var eftir þrumu- og bændagoðinu Þór. Það voru bændur í
14 Þorsteinn Björnsson í Selsundi, viðtal seinni hluti (J.Ö.M.),
Tíminn Sunnudagsblað, 19. mars 1967, bls.220-221.
15 Helga Skúladóttir, Rangárvellir 1930:lýsing landslags, jarða og búenda,
uppdrættir bæjanna, m.m. (Reykjavík 1950), bls. 117.
16 Björn Þorsteinsson: Á fornum slóðum og nýjum, greinasafn gefið út í tilefni af
sextugsafmæli höfundar 20. mars 1978 (Reykjavík 1978), bls. 226.
17 Páll líndal. ingólfur á Hellu ii : umhverfi og ævistarf : endurminningar ingólfs
Jónssonar á Hellu, fyrrum ráðherra og alþingismanns, sem Páll líndal hefur skráð
og búið í bókarform (Reykjavík 1982), bls. 83.