Goðasteinn - 01.09.2011, Síða 149
147
Goðasteinn 2011
svæðisins. lovísa kynnti fyr-
ir stjórn verkefnisins hugtak-
ið european Geopark og má
segja að þá hafi teningnum
verið kastað. Verkefnið fékk
góðar viðtökur, bæði með-
al sveitarstjórnarmanna og
ferðaþjónustuaðila á svæð-
inu, og 19. nóvember 2010
var jarðvangurinn stofnaður
formlega sem sjálfseign-
arstofnun á fundi í Brydebúð
í Vík í Mýrdal. efnt var til
nafnasamkeppni um heiti á jarðvangnum og bárust nokkrar tillögur um nafnið
sem að lokum var valið, Katla Geopark. Nafnið þótti viðeigandi þar sem um er
að ræða áhrifasvæði eldfjallsins Kötlu. Í nafnasamkeppnina barst einnig nýyrð-
ið „jarðvangur“ sem ákveðið var að nota sem íslenska þýðingu á geopark.
fjölmargir hafa komið að undirbúningi stofnunar jarðvangsins. Í stjórn
átaksverkefnisins (Net þekking-
ar frá Markarfljóti að Skeiðará) og
undirbúningshópnum fyrir Geo-
park sem var settur á stofn í kjölfar
átaksverkefnisins voru þau Ásgeir
Magnússon, davíð Samúelsson,
elín Heiða Valsdóttir, ingibjörg ei-
ríksdóttir, Ísólfur Gylfi Pálmason,
Ólafía Jakobsdóttir, Ólafur eggerts-
son, Ólafur Hilmarsson, Rögnvald-
ur Ólafsson, Sandra Brá Jóhanns-
dóttir, Sif Hauksdóttir, Sigurður
elías Guðmundsson, Sigurður Sig-
ursveinsson, Steingerður Hreins-
dóttir, Sveinn Pálsson, Sverrir Magnússon og Þuríður Halldóra Aradóttir. Þá
hafa sveitarstjórnir Skaftárhrepps, Mýrdalshrepps og Rangárþings eystra 2008-
2010 stutt dyggilega við verkefnið, en auk þeirra hafa Vaxtarsamningur Suður-
lands og Vestmannaeyja og ferðamálastofa styrkt verkefnið myndarlega.
umsókn um aðild að samtökum evrópsku jarðvanga (european Geopark
Network) var send fyrir 1. desember 2010 og er svars að vænta um inngöngu í
Frá stofnun sjálfseignastofnunar um jarðvanginn Kötlu
í Vík. Ljósmynd Þórir N. Kjartansson.
Ragnhildur Sveinbjarnardóttir frá Stóru-Mörk,
verkefnastjóri fyrir Kötlu Geopark