Goðasteinn - 01.09.2011, Síða 202
200
Goðasteinn 2011
Biðjum ættingjum og ástvinum blessunar.
En um leið erum við að tjá okkur um lífið. Gildi lífsins sem við lifum og
sem við kveðjum og það sem er þakkarvert.
- Það er hann sem gerir þig að heillri og betri manneskju í öllum aðstæðum
sem þú lifir, með aukið næmi á dýrmæti sjálfs lífsins, hve gæfan er brothætt
og gleðin dýrmæt, og jafnframt gæddri dýpri samúð í garð annarra, sem lífið
leggur þungar byrðar á herðar. Þeir eru margir sem hafa reynt það að sorgin og
þjáningin efldi skynjun þeirra gagnvart lífinu og töfrum þess og auði, og leiddi
til endurmats á gildi þess og gæðum.
Það er hollt að minnast þess að áföll ævinnar, sorg og harmar, marka ekki
aðeins endalok einhvers, heldur líka upphaf. upphaf verður ef Guð fær að
komast þar að með líkn sína og náð. Með honum er allt sem hendir öðrum
þræði fæðing, þar sem nýir möguleikar gefast til góðs.
Guð blessi minninguna sem við eigum um Ólaf. Guð blessi verk hans og
jarðlífssporin öll og allt sem hann var og veitti til góðs og blessunar á lífsferð
sinni.
Útör Ólafs var frá Selfosskirkju 23. júlí 2010.
Axel Á Njarðvík, héraðsprestur
sigrún fríður Pálsdóttir frá Kirkjulæk
Sigrún fríður fæddist 31. mars árið 1932 á Kirkjulæk
2 hér í fljótshlíð. foreldrar hennar voru Páll Nikulásson
bóndi á Kirkjulæk 2 f. 1899, d. 1968 og kona hans Helga
Metúsalemsdóttir húsfreyja f. 1907, d. 1980. Sigrún
var elst barna þeirra hjóna en hin eru þessi í aldursröð:
Ragnhildur f. 1935, Kristín Ástríður f. 1938, Regína Sig-
urlaug f. 1939, eggert Sören f. 1944 og Viðar Metúsalem
f. 1945.
Systkinin voru öll fædd á Kirkjulæk 2 og áttu því láni
að fagna að alast upp á því góða sveitaheimili sem Kirkjulækur hefur ætíð ver-
ið, í skjóli ástríkra og velmegandi foreldra, trausts og vandaðs bændafólks sem
hafði í heiðri fornar dyggðir og reyndi að sjá til þess að börnin skorti ekkert,
hvorki mat, klæði né kærleiksríka umönnun þótt þar hafi e.t.v. sem víðar ver-
aldarauðurinn verið rýr.
Sigrún naut hefðbundinnar barnafræðslu eins og hún tíðkaðist til sveita á
uppvaxtarárum hennar. Þegar því námi lauk fór hún til Reykjavíkur og settist
á skólabekk í Kvennaskólanum sem hún stundaði veturna 1947 til 51. Að þeim