Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 2

Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 2
2 Fréttir Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024 fyrir lífið í landinu Íslenskt kjarnfóður í öll mál Kjarnfóðrið frá Líflandi er íslensk framleiðsla Úrvals hráefni og aðföng Framleiðsla samkvæmt ströngum gæðakröfum Tæknivædd og nútímaleg fóðurverksmiðja Allar nánari upplýsingar hjá söluráðgjöfum Líflands í síma 540 1100 eða á fodur@lifland.is Ylrækt: Afkomutjón blasir við – Framboð á íslensku grænmeti minnkar vegna skorts á koltvísýringi Forsendur ylræktar bresta augljóslega ef ekki er tryggt aðgengi að grunnþáttum fram- leiðslunnar. Enn eru garðyrkju- bændur að kljást við skerðingu á koltvísýringi. Í lok september fengu viðskiptavinir Linde Gas enn eina tilkynningu þess efnis að fyrirtækið muni ekki geta tryggt afhendingaröryggi koltvísýrings á næstunni. Á meðan eru garðyrkjubændur beðnir um að draga úr notkun á koltvísýringi eins og kostur er næstu vikurnar. Slíkar tilkynningar hafa borist reglulega frá fyrirtækinu síðustu misseri. „Það liggur ljóst fyrir að skerðing á koltvísýringi veldur stórtjóni fyrir þá sem stunda ylrækt, sérstaklega á veturna þegar hús eru lokuð og koltvísýringur fellur, bæði uppskerulega séð og markaðslega séð. Framboð af íslensku grænmeti minnkar og afkomutjón blasir við framleiðendum,“ segir Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna. „Öruggt aðgengi að heitu og köldu vatni, rafmagni og koltvísýringi, auk vinnuafls, eru grunnþættir garðyrkjuframleiðslu. Skerðing á einhverjum af þessum þáttum bitnar á öllum.“ Bilun í flutningaskipi Linde Gas er eina fyrirtækið hér á landi sem útvegar garðyrkjubændum koltvísýring. Eins og fram hefur komið í Bændablaðinu hafa bændur ekki fengið afhent það magn af koltvísýringi sem þeir hafa skuldbundið sig til að kaupa frá fyrirtækinu og afhending þess hefur verið gloppótt. Að sögn bænda hefur fyrirtækið vísað í að borhola hér á landi sé ekki að skila því sem vonast er eftir, en nú sé vísað í bilun í flutningaskipi. Á fyrstu sex mánuðum ársins 2024 var flutt inn meira magn koltvísýrings til landsins en á ársgrundvelli síðustu ár. Þrátt fyrir það er afhending ótrygg og vegna skorts á koltvísýringi hafa garðyrkjubændur orðið fyrir uppskerutapi. „Það er slæmt að missa niður framboð á markaði milli vikna út af svona grundvallaratriði,“ nefnir Gunnlaugur sem hefur heyrt af sláandi tölum frá framleiðendum. „Í verstu tilfellunum var uppskeran að fara úr sex brettum í eitt. Það að framleiðendur hafi ekki tryggt aðgengi að koltvísýringi er forsendubrestur fyrir að vera í svona viðskiptum. Þeir verða að hafa afhendingaröryggi,“ segir hann. Vekur lagalegar spurningar Eina kolsýruvinnsla landsins er á Hæðarenda í Grímsnesi en Linde Gas á þar verksmiðjuna og allan nýtingarrétt á auðlind á jörðinni til ársloka 2064 samkvæmt leigusamningi. Eigandi jarðarinnar, Sigurður Karl Jónsson, sagði í 15. tbl. Bændablaðsins að umgengni fyrirtækisins við auðlindina og ástand vinnslunnar væri ekki í lagi – en með góðu móti væri hægt að framleiða ríflega landsþörf af koltvísýringi. Gunnlaugur segir leitt til þess að hugsa að garðyrkjubændur skuli nú þurfa að horfa til þess að flytja inn hráefni sem hægt væri að fá innanlands. „Þegar nóg er til af þessari vöru í landi Hæðarenda, framúrskarandi hreinu og flottu gasi, spyr maður sig af hverju fyrirtækið hafi ekki getað skaffað vöruna. Þessi samningur sem Linde Gas hefur felst víst í því að enginn megi kaupa þessa vöru úr landi Hæðarenda nema þeir, sem orkar mjög tvímælis. Í stað þess að gera viðeigandi ráðstafanir og nýta þessa frábæru auðlind er verið að sóa gjaldeyri í að flytja kolsýruna inn og það ekki í nægu magni með tilheyrandi tjóni fyrir alla,“ segir Gunnlaugur og leggur til tafarlausa endurskoðun stöðunnar til að koma í veg fyrir enn frekara tjón. /ghp Eina kolsýruvinnsla landsins er á Hæðarenda í Grímsnesi en Linde Gas á þar verksmiðjuna og allan nýtingarrétt á auðlind á jörðinni til ársloka 2064. Mynd / ghp Gunnlaugur Karlsson. Græða vel á gasinu Linde Gas á Íslandi skilaði metafkomu árið 2023. Hagnaður félagsins eftir skatta var yfir milljarður króna og hrein eign félagsins í árslok nam rúmum 5 milljörðum króna. Félagið greiddi einn milljarð króna til hluthafa sinna á rekstrarárinu 2022, að því er fram kemur í nýjum ársreikningi félagsins. Linde Gas er skilgreint í ársreikningi sem lyfja-, matvæla- og iðnaðarfyrirtæki sem framleiðir súrefni, köfnunarefni og koldíoxíð. Þar segir einnig að fyrirtækið flytji inn aðrar gastegundir og búnað fyrir viðskiptavini og að það reki súrefnisverksmiðju í Vogum á Vatnsleysuströnd og koldíoxíðverksmiðju á Hæðarenda í Grímsnesi, auk áfyllingarstöðvar, rannsóknarstofu og skrifstofu sem staðsett er á Búðarhellu í Hafnarfirði. Í ársreikningnum kemur fram að allt hlutafé félagsins sé i eigu OY Linde Gas Ab í Finnlandi sem er hluti af Linde Group. Endanlegt móðurfélag er Linde plc. sem er skráð félag í Írlandi. Skráðir eigendur Linde Gas á Íslandi eru sænskir, sem og forstjóri þess. Sölutekjur félagsins námu tæplega 4 milljörðum króna en framleiðslu- kostnaður nam 975 milljónum. Annar rekstrarkostnaður er skráður tæpar 1,4 milljarðar króna í ársreikningnum. Sauðfjárslátrun: Lömbin léttari en í fyrra Sigurður Bjarni Rafnsson, slátur- hússtjóri Kaupfélags Skagfirðinga (KS), segir slátrun fara vel af stað. Lömbin eru hins vegar talsvert léttari en í fyrra út af hreti í vor og köldu sumri. Hann segir að miðað við það sem hefur komið í slátrun hingað til sé meðalþunginn talsvert lægri en á síðustu árum. Allt stefni í að fallþungi hrynji niður um 800 til 1.000 grömm í sláturhúsi KS, en meðalfallþungi lamba á landinu öllu í fyrra var 17,2 kílógrömm. Sigurður Bjarni segir að féð úr nágrenni Tröllaskagans sé léttast en sé strax vænna þegar komið er vestur í Húnavatnssýslur. Þegar Bændablaðið ræddi við Sigurð Bjarna á mánudaginn reiknaði hann með að í lok dags yrði KS búið að slátra í kringum 57 þúsund lömbum það sem af er hausti. Nálega 3.000 gripir fara daglega í gegnum sláturhúsið þegar hæst stendur. Hann reiknar með að heildarfjöldinn verði á milli 80 til 90 þúsund fjár, þó ómögulegt sé að fullyrða um það nákvæmlega núna. Alls eru 156 starfsmenn sem taka þátt í sláturtíðinni, að megninu til farandverkafólk frá Póllandi sem hverfur aftur til síns heima þegar sláturvertíð lýkur. Stefnt er að því að sláturtíðin endi 23. október og er engu sauðfé slátrað eftir þann tíma í Kjötafurðastöð KS. /ál Sigurður Bjarni Rafnsson. Bændasamtök Íslands hafa lagt umsögn sína um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum inn í samráðsgátt stjórnvalda. Telja þau að umræðan um loftslagsaðgerðir í landbúnaði þurfi að taka mið af þeirri sérstöðu að þar undir sé frumframleiðsla matvæla og timburs, meðal annars. Samtökin leggja áherslu á að kvaðir, markmið og aðgerðir í loftslagsmálum byggi á og taki mið af fæðuöryggi, matvælaöryggi og sjálfbærum rekstri býla sem hafi beina tengingu við skyldur Íslands í alþjóðamálum og stefnumörkun stjórnvalda. Áhrif á afkomu bænda Bent er á að íslenskir bændur eigi í reynslubankanum bæði aðgerðir og útfærslur í stuðningskerfi landbúnaðar með jákvæðum hvötum sem hafi skilað góðum árangri við innleiðingu nýrra aðferða. Öflugt skýrsluhald og ráðgjafarþjónusta í landbúnaði hafi skilað mikilli þekkingu, framförum og bættri afkomu bænda. Þessar aðgerðir hafi einnig skilað gríðarlegum árangri í loftslagsmálum og hafa Bændasamtökin reiknað út að frá 2005 til 2021hafi náðst tæplega 30 prósent samdráttur á hverja framleidda einingu í íslenskum landbúnaði. Með sterkum grunnstoðum og jákvæðum hvötum sé hægt að halda áfram á sömu braut árangurs. Bændasamtökin gera ekki athugasemdir við einstakar aðgerðir í aðgerðaáætluninni. Þau leggja áherslu á að landbúnaðurinn takist óhræddur á við þær áskoranir sem felast í loftslagsmálum. Mikilvægt sé að fjármögnun aðgerða taki mið af þeim áhrifum sem þær kunna að hafa á afkomu bænda. Ræktunarland aðgengilegt áfram sem slíkt Samtökin sjá mikil tækifæri í því að auka kolefnisbindingu í landbúnaði. Mikilvægt sé að á bak við slíkar aðgerðir séu sannprófaðar aðferðir. Bent er á skógrækt sem þekkta leið til þess. Dæmin sanni að mikil þörf sé fyrir aðkomu stjórnvalda að þeim málaflokki, ekki síst hvað varðar skipulagsmál, enda mikil tækifæri fólgin í skógrækt sem og landgræðslu á rýrum svæðum. Leggja þau áherslu á að allar aðgerðir, svo sem ræktun skóga og endurheimt votlendis, séu unnar í sátt við matvælaframleiðslu og miðist að því að ræktunarland verði áfram aðgengilegt sem slíkt. /smh Loftslagsmál: Um 30% samdráttur á hverja framleidda einingu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.